|
Skrifað af: Ragga Nagli
|
|
Miðvikudagur, 01. október 2008 00:00 |
Amínósýrur BCAA Grein eftir Röggu NaglaBCAA: Hugtakið BCAA (branched chained amino acids) vísar til amínósýranna leucine, isoleucine og valine. Þessar amínósýrur eru án efa þær mikilvægustu í viðgerð og byggingu vöðvavefs. Leucine er mikilvægast af þessum þremur, því eins og rannsóknir sýna þá getur hún stuðlað að myndun prótína í líkamanum upp á eigin spýtur. Það er samt betra að taka allar þrjár BCAA amínósýrurnar því þær vinna saman í ýmsum þáttum. Til dæmis vöðvavexti, auka orku á æfingu, hindra kortisól framleiðslu (niðurbrjótandi hormón sem hamlar testósterón) og minni harðsperrur eftir æfingu.
Hvernig má hámarka áhrif þeirra? Taktu 5-10gr af BCAA með morgunmat, með prótínsjeik fyrir og eftir æfingu. Veldu vöru sem inniheldur leucine í hlutfallinu 2:1 á móti isoleucine og valine. Til dæmis ef þú tekur 5gr skammt þá ætti 2,5gr að vera úr leucine og 1,25gr úr isoleucine og 1,25gr úr valine.
|