Senda í tölvupóst
Mánudagur, 04. ágúst 2008 00:00

Beta Alanine/Carnosine

Grein eftir Röggu Nagla

Beta Alanine/Carnosine: Í líkamanum binst amínósýran Beta Alanine við amínósýruna Histidine og saman mynda þær carnosine. Carnosine finnst í miklu mæli í Týpu II vöðvaþráðum, sem notaðir eru við sprengikraft líkt og lyftingar eða spretthlaup. Rannsóknir sýna að vöðvar sem hafa hærra magn af carnosine hafa meiri styrk og úthald. Carnosine virðist auka getu vöðvaþráða til að dragast saman með meira afli og þeir eru lengur að þreytast. Nokkrar rannsóknir benda til aukningar í vöðvastyrk og krafti í íþróttamönnum sem taka Beta-Alanine. Nýleg rannsókn sýndi að þeir sem tóku Beta-alanine samhliða kreatíni bættu á sig meiri vöðvamassa og misstu meiri líkamsfitu samanborið við þá sem tóku eingöngu kreatín.

Hvernig má hámarka áhrif þess? Taktu 1gr af Beta-Alanine eða carnosine með máltíðum 3-4 sinnum á dag.