|
Fimmtudagur, 11. september 2008 00:00 |
ZMA ZMA er blanda af zink, magnesíum og B6 vítamíni. Þetta er mikilvægt bætiefni því þeir sem æfa mikið skortir oft þessi steinefni sem eru mikilvæg til að viðhalda réttu hormóna hlutfalli í líkamanum og bætir svefninn sem er nauðsynlegt til að vöðvarnir nái að jafna sig. Áköf þjálfun getur haft áhrif á magn testósteróns og IGF-i. Ein rannsókn sýndi að þeir sem tóku ZMA yfir 8 vikna þjálfunartímabil juku magn testósteróns og IGF-i í líkamanum. Hins vegar minnkaði testósterón og IGF-i hjá þeim sem tóku lyfleysu. Aukið testósterón og IGF-i í líkamanum hefur gríðarleg áhrif á styrk og stærð vöðva.
Hvernig má hámarka áhrif þess? Taktu ZMA 30-60 mínútum fyrir svefn án matar eða einhvers sem inniheldur kalk. Með því að taka ZMA á tóman maga hámarkar frásog þess og nýtingu þess til að bæta gæði svefnsins.
|