Brenna eða Lyfta ? Grein eftir Röggu Nagla
Ég hef bara klukkutíma til að æfa á daginn. Er ekki betra fyrir mig að brenna í klukkutíma frekar en eða lyfta ef markmiðið er að missa fitu?
Naglinn hefur oft heyrt spurningar frá kynsystrum sínum á borð við þessa.Það virðist vera útbreiddur misskilningur meðal kvenna að brennsluæfingar séu vænlegri kostur til fitutaps en lyftingar.
Ef planið er að missa fitu er tíminn í ræktinni best nýttur í lyftingar og HIIT brennsluæfingar. Ef bornar eru saman 30 mínútna brennsluæfing á meðalákefð (70-80% púls) og 10-setta lyftingaæfing sem samanstendur af fjölliða (compound) æfingum má sjá að þessar tvær æfingar brenna svipuðum hitaeiningafjölda á meðan æfingu stendur eða u.þ.b 300-350 hitaeiningum.
Hins vegar eftir lyftingaæfingu helst efnaskiptahraðinn hár allan daginn og við brennum allt að 700 hitaeiningum aukalega í hvíldinni. Fjölliða æfingar (compound) eru lyftingaæfingar þar sem hreyfingin fer í gegnum fleiri en einn lið og reynir því á fleiri vöðva t. d: Hnébeygja, Réttstöðulyfta, Fótapressa, Framstig, Bekkpressa, Róður og Upphífingar.
Þessar æfingar eru orkufrekari en svokallaðar einangrandi (isolation) æfingar þar sem hreyfingin fer aðeins í gegnum einn lið og reynir þar með á færri vöðva, t . d Fótarétta.
Meiri orka fer í að framkvæma fjölliðaæfingar og eftir að æfingu lýkur draga fleiri vöðvar í sig næringu fyrir viðgerðaferlið og til að fylla á glýkógenbirgðirnar. Þar af leiðandi stuðla fjölliðaæfingar (compound) að meiri fitubrennslu yfir daginn en einangrandi æfingar. Fjölliðaæfingar ættu því að vera í aðalhlutverki í æfingaplaninu.
Nokkrir ávinningar styrktarþjálfunar fyrir konur: • Sterkari bein = minni líkur á beinþynningu • Sterkari bandvefur kemur í veg fyrir meiðsli með auknu stöðugleika liða • Betri dagleg virkni fyrir daglegar athafnir s. s halda á börnum eða innkaupapokum • Aukinn vöðvamassi og minni fitumassi • Aukin grunnbrennsla sökum aukins vöðvamassa og minni fitu. Öfugt við fitumassa er vöðvamassi virkur vefur sem brennir jafnvel þó hann sé í hvíld. Þannig eykur hann grunnbrennslu og hitaeiningaþörf líkamans. Sem þýðir að við getum borðað meira án þess að fitna því stærri vöðvar krefjast meiri orku. • Aukið sjálfstraust og sjálfsöryggi
Kveðja Ragga Nagli
|