Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ragga Nagli   

Prótein

Fróðleikshorn Röggu Nagla

Prótín í fæðu er samsett úr lengjum af amínósýrum sem eru síðan brotnar niður í líkamanum við meltingu. Hver amínósýra hefur ákveðnu hlutverki að gegna í líkamsstarfsemi. Þær byggja m.a. upp vöðva, tennur, húð, hár og neglur og líffæri. Ef líkaminn fær ekki nægilegt magn af prótíni getur hann ekki byggt upp eða viðhaldið vöðvamassa. Mælt er með að kyrrsetufólk innbyrði 0.8 g af prótíni fyrir hvert kg af líkamsþyngd. Hins vegar þarf íþróttafólk og aðrir sem æfa líkama sinn að innbyrða meira af prótíni til að viðhalda vöðvamassa og er mælt með 2 - 3 g af prótíni fyrir hvert kg af líkamsþyngd.

Með því að borða prótín reglulega í smáum máltíðum yfir daginn helst blóðsykur stöðugur. Það er mikilvægt að borða fjölbreytta prótínríka fæðu því engin ein uppspretta prótíns inniheldur allar þær amínósýrur sem líkaminn þarfnast.

Prótín frásogast misvel í líkamanum eftir því úr hvaða fæðu það kemur. Talað er um líffræðilegt gildi þeirra eða Biological Value (BV) og er þá miðað við heilt egg sem hefur BV upp á 100. Mysuprótín frásogast 105-157 % eftir vinnslu þess og besta uppspetta þess er úr prótíndrykkjum. Það frásogast hratt og best að taka það þegar við þurfum snögglega amínósýrur eins og eftir æfingu.


Heil egg hafa eins og áður sagði BV upp á 100 en það er ekki ráðlegt að borða margar eggjarauður á dag því þær eru mjög feitar en innihalda þó hátt magn prótíns, B-6 og steinefna. Eggjahvítur hafa BV upp á 88% og því er ráðlegt að borða sem mest af eggjahvítum en takmarka rauður við 1-2 á dag.

Fiskur hefur BV 78%. Feitur fiskur eins og lax, silungur, makríll og síld eru góðir prótíngjafar og einnig mjög hollir fyrir hjarta og æðakerfið því Omega fitusýrurnar í kjöti þeirra hefur stjórn á kólesteról magni líkamans. Hvítur fiskur eins og ýsa og þorskur innihalda ekki mikið af Omega fitusýrum en eru mjög góðir prótíngjafar og innihalda fáar hitaeiningar. Skelfiskur eins og rækjur eru hræætur og prótínið úr þeim nýtist ekki eins vel og úr fiski til vöðvauppbyggingar.

Kjúklingabringur 68%  Dýraprótín eru fullkomin prótín sem þýðir að þau innihalda margar nauðsynlegar amínósýrur en prótín úr jurtaríkinu eru ófullkomin því þau innihalda ekki allar nauðsynlega amínósýrur. Það eru 20-22 amínósýrur í prótíni og af þeim eru 8-10 nauðsynlegar sem þýðir að við þurfum að fá þær úr mataræðinu til að halda eðlilegri líkamsstarfsemi. Hinar getur líkaminn búið til sjálfur. Líkaminn getur ekki geymt umfram amínósýrur og því þurfum við að fá þær úr mataræðinu hvern dag til að viðhalda eðlilegri starfsemi.

Kveðja
Ragga Nagli