|
Skrifað af: Ragga Nagli
|
|
Fimmtudagur, 16. ágúst 2007 00:00 |
Hef fengið til liðs við mig Röggu Nagla  |
Hún ætlar að henda hér inn skemmtilegum greinum um allt mögulegt tengt ræktinni, líkamanum og fæðurbótaefnum Hér koma nokkur góð ráð til að hvetja okkur í áfram í púlinu:
• Gefa sér tíma fyrir líkamsrækt. Afsakanir eins og að hafa ekki tíma er bara kjaftæði. Fólk sem segist ekki hafa tíma til að hreyfa sig, en kann svo sjónvarpsdagskrána utanað. Hvernig væri að eyða frekar klukkutíma í göngutúr á kvöldin frekar en að glápa á imbann? Það er líka hægt að fara snemma að sofa og vakna klukkutíma fyrr. Það er mjög fátt í daglega lífinu sem truflar hreyfingu kl. 6 að morgni.
• Venjuleg manneskja sem er vakandi í 16 tíma á dag, vinnur í 8 tíma og hreyfir sig í klukkutíma, á ennþá 7 tíma eftir af deginum til að sinna öðru, hvort sem það er að horfa á Glæstar vonir, þvo þvott eða elda mat.
• Finna sér hreyfingu sem manni þykir skemmtileg. Sumir finna sig bara engan veginn inni á líkamsræktarstöðvum og þá er um að gera að prófa sig áfram með hvaða hreyfing manni þykir skemmtileg. Ertu hópíþróttatýpan og þykir skemmtilegast að berjast um boltatuðru? Eða ertu einfari og veist ekkert skemmtilegra en að hlaupa einn um grænar grundir eða grátt malbik?
• Setja sér markmið, hvort sem það er að losna við lýsið, hlaupa maraþon eða toppa sig í bekknum. Skrifa markmiðin niður og passa að þau séu raunhæf og mælanleg. Markmið gera hreyfingu markvissari og maður sér betur tilganginn með púlinu þegar árangri er náð, svo ekki sé talað um gleðina og stoltið sem fyllir sálartetrið.
• Ekki festast í viðjum vanans og framkvæma sömu æfingarnar í sömu röð allan ársins hring. Það er mikilvægt að hrista upp í prógramminu á 4-6 vikna fresti. Svo má alltaf prófa nýja hreyfingu, eins og veggjatennis, kíkja í spinning tíma, fara út að hlaupa frekar en í pallatíma o.s.frv. Þannig komum við í veg fyrir að stöðnun í þjálfun og höldum sjálfum okkur við efnið í stað þess að mygla yfir sömu gömlu rútínunni.
• Æfingafélagi eða einkaþjálfari er skotheld leið til að sparka í rassinn á okkur, hvort sem er til að mæta á æfingu eða til að kreista út einu repsi meira. Ekki vill maður svíkja vininn og mæta ekki, og þjálfun kostar morðfjár og ekki kasta menn peningum á glæ.
• Allir þurfa að hafa áætlun, til dæmis hvaða daga eigi að æfa, klukkan hvað hentar best, hvaða líkamshluta eigi að lyfta eða ætlum við að hlaupa í dag o.s.frv. En það er líka gott að hafa varaáætlun, því lífið er jú óútreiknanlegt. Til dæmis ef tækið sem við ætluðum að taka í ræktinni er upptekið og við erum tímabundin því það á eftir að sækja lilla í leikskólann, þvo skyrtuna fyrir morgundaginn und so weiter.... þá er um að gera að nota tímann í stað þess að hanga í pirringskasti, og taka kviðinn á meðan sem við ætluðum að taka í lok æfingar eða finna svipað tæki sem tekur sama vöðvahóp. Ef eitthvað kemur upp sem truflar að við komumst á æfingu á þeim tíma sem áætlað var, er hægt að fara út í göngutúr um kvöldið eða sippa heima í halftíma eftir að börnin eru háttuð. Reynum að gera hreyfingu jafn sjálfsagða og að bursta tennur.
|