Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ragga Nagli   
Þriðjudagur, 04. nóvember 2008 10:22

HIIT-æfingar

Grein eftir Röggu Nagla 



Hvað er það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar það hugsar um fitutap ?
Brennsluæfingar.  Jamm jamm, klukkutími eftir klukkutíma af leiðinlegum, heiladrepandi brennsluæfingum.  Af hverju ?  Af því þetta hefur verið tuggið ofan í okkur.  Viltu missa fitu ?  Búðu þig þá undir haug af brennsluæfingum. 

Hér er vandamálið - það er ástæða fyrir því að þú þarft að gera svona mikið af því: hefðbundnar brennsluæfingar, eða öllu heldur loftháð þjálfun brenna ekki svo mörgum hitaeiningum til að byrja með.  En stigavélin segir að þú hafir brætt 1000 kaloríur á 10 mínútum.  Því miður, ekki satt.  Þessar maskínur ofmeta allar brennslu hitaeininga.

Lesendur síðunnar ættu að kannast við lotuþjálfun eða HIIT.  Ef ekki, þá er það einfaldlega ein tegund brennsluæfinga þar sem endurtekið skiptast á lotur af hárri ákefð og lotur á lágri ákefð.  Lotuþjálfun er venjulega skilgreind sem vinna - hvíld hlutfall, þar sem ‘vinnu' hlutinn er há ákefð/sprettir og ‘hvíldar' hlutinn er lágri ákefð/aktíf hvíld.   
 
Til dæmis eru endurteknar lotur af 30 sekúndna sprettum á móti 90 sekúndna kraftgöngu dæmi um lotuþjálfun með 1:3 vinna - hvíld hlutfall (hvíldin er 3x lengri en vinnan).  Smáatriðin í hlutföllunum eru ekki krítísk fyrir árangur, það sem skiptir mestu máli er að þú keyrir þig út, og hvílir á milli.  Venjan er samt yfirleitt að taka 30-60 sekúndna spretti, og hvíla í 60-120 sekúndur á milli.


Er HIIT áhrifaríka fyrir fitutap en SS (steady-state) brennsluæfingar?  Fyrir utan tímasparnað er HIIT mun áhrifaríkari, en mun erfiðari fitubrennsluæfingar. Hver einasti kjaftur sem hangir á skíðavélinni í klukkutíma breytist ósköp lítið í útliti, það er bara staðreynd.
  
Vandinn við að reiða sig um of á SS brennslu, fyrir utan tímaeyðslu og almenn leiðindi, er að því meira sem þú gerir því meira þarftu að gera.  Eftir því sem loftháða þolið í okkur verður betra, verðurðu skilvirkari í að brenna fitu.  Hljómar vel, ekki satt?  Nei, ekki aldeilis.!   
Því skilvirkari sem við verðum, því minni orku þarf líkaminn að gefa frá sér í hreyfinguna.  Við viljum vera óskilvirk þegar kemur að fitutapi.   
 
Þó að maður brenni færri hitaeiningum í HIIT samanborið við SS, þegar eftir - æfingu glugginn er reiknaður með, leiðir HIIT til meiri hitaeiningabruna og fitutaps.  Þetta er vegna þeirra áhrifa sem HIIT hefur á brennslukerfið í okkur.  Grunnbrennslan hækkar ekki aðeins á meðan verið er að puða, hún helst í hámarki í marga klukkutíma eftir HIIT æfingu.

Þetta er einmitt galdurinn við HIIT - fitan lekur af  í hvíld eftir æfinguna. 

Kveðja
Ragga Nagli