Skemmd Brennsla / Metabolic Damage Finnst þér að alveg sama hversu mikið þú passar upp á mataræðið eða hversu mikið þú æfir, bölvuð fitan haggast bara ekki? Varstu einu sinni himinlifandi með fitutaps planið þitt, en núna er stöðnunin að gera þig brjálaða(n).
Það virðist sem ekkert virki á þig lengur, og þú hefur prófað allt undir sólinni – há-kolvetni, lág-kolvetni, engin kolvetni, fáar hitaeiningar, fitubrennslutöflur, endalaust cardio – allt án árangurs, lýsið situr sem fastast. Það er fátt meira frústrerandi og maður getur tapað glórunni að pæla endalaust í grömmum og hitaeiningum inn og út.
Vandamálið getur verið skemmt brennslukerfi. Þetta fyrirbæri er afleiðing margra ára megrunar, þar sem hitaeininganeysla er undir grunnþörfum í langan tíma. Hljómar frekar illa, en er ekki eins hræðilegt og margir halda. Það er mjög algengt að fólk sé með sultarólina í innsta gati allan ársins hring og eyði óteljandi klukkustundum á brettinu daginn út og inn, og því er þetta fyrirbæri mjög algengt. Þú ert ekki Palli einn í heiminum með þetta vandamál. Góðu fréttirnar eru þær að það er hægt að snúa þessari þróun við. Það er til mjög einföld leið til að hressa upp á slappa brennslu. Skemmd brennsla er ekki varanlegt ástand og brennsla stöðvast aldrei alveg. Jú, það hægist á henni en það er eðlilegt viðbragð við of fáum hitaeiningum. Þegar líkaminn er í hitaeiningaþurrð kemur fram lífeðlislegt viðbragð sem er arfleifð frá forfeðrum okkar. Hormónarnir sem stjórna hraða brennslunnar og fitutapi svara á þann veg að geyma líkamsfitu frekar en að brenna henni. Þannig er líkaminn að bregðast við hungursneyð með að passa upp á langtímaforðann. Þessi áhrif margfaldast því lægri sem fituprósenta líkamans er, sem tengist oft lengri tíma að missa fitu. Niðurstaðan er hægari ef ekki stöðnuð fitubrennsla. Það skiptir ekki máli hversu skothelt næringarplanið er, ef við borðum of fáar hitaeiningar þá mun líkaminn aðlaga sig að því sem hann telur vera hallæri. Hvað er til ráða? Þú þarft að borða meira. Já þú last rétt...borða meira, ekki minna. Það er samt ekki ráðlegt að byrja allt í einu að gúffa í sig eins og enginn sé morgundagurinn. Auktu hitaeininganeyslu skref fyrir skref í þessar tvær vikur í átt að grunnþörf. Til dæmis má auka hitaeiningarnar um c. a 10-20% á hverjum degi í nokkra daga þar til grunnhitaeiningaþörf er náð. Með þessu móti venjum við líkamann smám saman á að borða meira, sem kemur í veg fyrir að við bætum aftur á okkur fitu. Ráðlegt er að halda þessum hærri hitaeiningafjölda í tvær vikur. Þyngdin gæti aukist á þessum tveim vikum, en það er líklega vökvasöfnun og vöðvaglýkógen. Ekkert til að missa svefn yfir. Þessar tvær vikur af aukinni hitaeininganeyslu hjálpa nefnilega til við frekara fitutap þegar við byrjum svo að skafa t.d fyrir keppni. Bæði erum við búin að endurstilla brennsluna í okkur, okkur líður betur og höfum meiri orku í æfingarnar sem skila sér í aukinni brennslu. Kveðja Ragga Nagli
|