Senda í tölvupóst
Skrifað af: Ragga Nagli   
Miðvikudagur, 25. mars 2009 12:36

 Leptin - Konungur Fitutaps

Leptin er hormón sem er losað aðallega úr fitufrumum og það inniheldur leyndarmálið að varanlegu fitutapi. Leptin er forstjóri þegar kemur að hormónum og stjórnar fullt af öðrum undirmönnum sem hafa áhrif á helling af fitubrennslufúnksjónum. Til dæmis stjórn á matarlyst, fitubrennsla, meltingarhraði, viðhald vöðva og jafnvel framleiðslu testósteróns og vaxtarhormóna. Semsagt allt sem viðkemur fitutapi er stjórnað af Leptin.  

Þegar líkaminn skynjar að nú sé næringarskortur (þegar við neytum of fárra hitaeininga) lokar hann á framleiðslu Leptin, sem hefur keðjuverkandi áhrif á allar hliðar meltingar og fitubrennslu, allt frá meltingarhraða til hungurs.

Til dæmis má nefna áhrif Leptins á CCK sem er hormónið sem segir okkur hvenær við séum orðin södd og eigum að hætta að borða. Þegar Leptin magn í líkamanum er lágt starfar CCK undir eðlilegum mörkum. Það þýðir að við eigum erfitt með að borða nóg til þess að verða södd og endum með að borða langt yfir eðlilega skammtastærð. Umfram magnið breytist því í fitu. Ekki gott mál.
 
Langtímaáhrif Leptin á matarlyst eru gríðarlega mikilvæg. Leptin er framleitt í fitufrumum og því meiri fitu sem fruman geymir því meira Leptin framleiðir hún. Leptin er losað út í blóðrás og það syndir til heila þar sem það örvar framleiðslu á prótínum sem minnka hungurtilfinningu. Semsagt, þegar við erum með umfram fitu á skrokknum þá er krónískt hungur í lágmarki. Hins vegar þegar við missum mör þá byrjar hungrið að banka á dyrnar. Leptin er líka æðsti stjórnandi meltingarhraða. Það stjórnar losun hormóna eins og kortisóli, skjaldkirtilshormónum og testósteróni. Þessi hormón hefur gríðarlegt áhrif á orkujafnvægi, brennsluhraða og fitutap. Til dæmis þegar Leptinmagnið minnkar í líkamanum þá dregur það skjaldkirtilshormón og testósterón niður með sér en eykur framleiðslu á kortisóli.
 
Kortisól er djöfull í hormónamynd og brýtur niður vöðvana, með þeim afleiðingum að brennslan dettur niður í fyrsta gír og hjakkast áfram. Hvað stjórnar framleiðslu Leptin? Svarið er: líkamsfita og næring. Því stærri sem fitufruman er því meira Leptin er framleitt. Þegar við missum fitu skreppur fruman saman og Leptin framleiðsla minnkar. Minna Leptin í líkamanum þýðir krónísk svengd, hægari brennsla, minni vöðvavöxtur og meira niðurbrot. Eftir því sem fitumagnið verður minna í líkamanum því erfiðara er að halda fitutapi gangandi.
 
Hver kannast ekki við þessi síðustu óþolandi 5kg? Næringarinntaka er annar mikilvægur hluti í framleiðslu Leptin. Þegar við borðum losar líkaminn insúlín sem hefur áhrif á Leptin framleiðslu og eykur hana um 40%. Á hinn bóginn getur næringarskortur bælt niður insúlín framleiðslu og þar af leiðandi framleiðslu á Leptin. Þetta er megin ástæða þess að megrunarkúrar þar sem hitaeiningar eru fáránlega fáar virka ekki. Hið sama gildir um 3 máltíðir á dag þar sem langur tími líður milli máltíða. Besta aðferðin til að halda Leptin í stuði er að borða oft og lítið á dag og passa að hitaeiningar detti aldrei niður í sögulegar lægðir.

 

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 24. júní 2010 16:14