Þetta snýst allt um matarræðið
Grein eftir Röggu Nagla
Algeng mistök sem margir gera, sérstaklega kvenpeningurinn, er að hamast og djöflast í járninu til að byggja upp vöðva en borða síðan eins og Belzen fangar.
Mörgum konum hættir nefnilega til að vera í ævilangri megrun, og eru skíthræddar við nálina á vigtinni. Fari hún upp á við er lífið ónýtt og ósanngjarnt, og gripið er til dramatískra aðgerða. Sultarólin reyrð í innsta gat og hangið á brennslutækjunum þar til lungun biðja um miskunn. Naglinn þekkir þetta allt saman of vel frá fyrri tíð....
|
Flesta langa til að verða helmassaköttaðir, en til þess að verða skorin þurfum við að hafa eitthvað kjöt fyrir, annars endum við bara eins og rýrir kjúklingar. Það er því nauðsynlegt fyrir alla að taka tímabil þar sem fókusinn er að byggja upp vöðvamassa.
Gamla klisjan: "Já en mig langar ekki að verða vöðvatröll" hlýtur að vera orðin mygluð hjá flestum konum, enda vitum við jú betur, er það ekki? Naglinn leggur til að þessi frasi verði jarðaður í Fossvogskirkjugarði með viðhöfn svo ekki þurfi að heyra hann aftur.
Konur geta ekki orðið helmassaðar nema með hjálp utanaðkomandi efna og ólíklegt er að MeðalJónan sé inni á klósetti á líkamsræktarstöð að sprauta sig í bossann fyrir æfingu.
Til þess að fá vöðvamassa þarf að lyfta og það þarf að borða.
En lífið er aldrei einfalt.
Það þarf að lyfta þungt og rétt, og það þarf að borða mikið og rétt.
Fyrsta skrefið er að finna út þann hitaeiningafjölda sem þarf til að viðhalda sömu þyngd.
Það kallast viðhaldshitaeiningar (maintenance calories).
Slump reikningur fyrir þá tölu er yfirleitt c.a 30 x líkamsþyngd í kilóum. Athugið að þá er búið að reikna inn þætti eins og hreyfingu, brennslu við meltingu fæðu o.s.frv. Flestir þurfa að aðlaga þessa tölu eitthvað og finna út hvar þeirra viðhaldshitaeingar liggja.
Þegar við erum í megrun er einnig talað um að við séum í hitaeiningaþurrð (calorie deficit) því við borðum undir viðhaldshitaeiningafjölda.
Þegar við byggjum okkur upp erum við hins vegar í hitaeiningaofgnótt (calorie surplus), því við borðum meira en þarf til að viðhalda sömu þyngd.
Í megrun er skortur á orku, og yfir langan tíma í hitaeiningaþurrð þá er það síðasta sem líkaminn vill gera er að bæta við virkum vef eins og vöðvum, sem krefjast bæði hitaeininga og orku.
Hann á ekkert aflögu til að halda vöðvavef gangandi, þar sem hann er þegar að ströggla við að framfleyta eigin þörfum.
Líkaminn gerir ekki starf sitt erfiðara af fúsum og frjálsum vilja.
Hitaeiningainntaka og vöðvavöxtur haldast nefnilega þéttingsfast í hendur.
Flestir flaska á því að borða nógu mikið og því er uppskera þeirra oft rýr í orðsins fyllstu merkingu.
|
Það er ekki þar með sagt að fólk eigi að gúffa í sig hamborgurum og pizzum til að fá sem mesta orku til að stækka, sú aðferð stækkar bara vömbina og þjóhnappana.
Til þess að byggja upp gæðakjötmassa með sem minnstri fituaukningu er grundvallaratriði að mataræðið sé hreint, og lágmarka allan sukkmat.
Það má hins vegar alveg leyfa sér svindlmáltíðir 2-3 x í viku á uppbyggingar tímabili, svo lengi sem restin af vikunni er tandurhrein og vel tekið á því í ræktinni.
Kveðja, Ragga Nagli.