Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   

Fyrsta hugmyndin um Vöðvafíkn kviknaði á heimasíðunni minnsirkus.is sumarið 2006, þar sem hægt var að stofna samfélag utan um áhugamál sín og hét samfélagið Fitness, Vaxtarrækt, Kraftlyftingar og Aflraunir.

Ég hafði fylgst með fitness og vaxtarræktarkeppnunum sem fóru fram á Akureyri frá 2003 og hafði sjálf keppti í tvisvar sinnum í unglingaflokki. Það sem mér fannst erfiðast við fitnessið var að hvergi var hægt að finna upplýsingar á íslensku um hvernig ætti að bera sig að fyrir keppnir, hvort sem það tengdist pósum, brúnkukremi, æfingum, mataræði eða öðrum undirbúningi. Þar sem ég hafði nú einhverja reynslu ákvað ég að deila henni með þeim sem höfðu áhuga á að keppa .

Sumarið 2006 fór ég að fylgjast með úrslitum aflraunakeppna og mætti ég á mitt fyrsta aflraunamót (semsagt mætti án þess að ramba óvart inn á eitt) til að taka myndir af keppendum svo ég myndi nú vita hvernig þeir litu út. 

Um haustið fóru kraftlyftingarmótin á fullt. Mér fannst alveg óþolandi að lesa langan lista af úrslitum og hafa ekki hugmynd um hver Jón Jónsson var, hafði hann keppt áður ? Var þetta nýgræðingur eða alvanur kraftlyftingarmaður ?

Það var aðallega sú litla athygli sem þessi sport fá sem fékk mig til að  reyna að fjalla um þau eins mikið og ég gat.

 

Sunna Hlín Gunnlaugsdóttir

Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


Website counter

Mót framundan
Ef nafn keppni er gul þá er hægt að smella á nafnið og fá nánari upplýsingar

19.nóvember
Bikarmót IFBB
Smellið hér til að sjá dagskrá

Módel Fitness, Fitness og Vaxtarækt

Háskólabíó
Kl 11.00 og 18.00
Kostar 1.500kr á Forkeppni
Kostar 3.000kr á Úrslit
4000kr á báða viðburði
BÖRN 1000kr hvor viðburður

EKKI NÚMERUÐ SÆTI OG HÆGT
AÐ KAUPA MIÐA VIÐ INNGANG

KEPPENDALISTI Bikarmótsins


26.nóvember
Bikarmót KRAFT í Kraftlyftingum

Akureyri


3.desember
Íslandsmót KRAFT í Réttstöðulyftu


3.desember
Fógetamótið
Kjötmót í Bekkpressu (ÍKF METAL)


3 desember
Bikarmót RAW í Réttstöðulyftu


31.desember
Gamlársmótið (Akureyrarmót) í Bekkpressu
Kraftlyftingarfélag Akureyrar (KRAFT)

Akureyri


31.desember
Breiðabliksmót í Bekkpressu (KRAFT)


31.desember
Bikarmót RAW í Bekkpressu