Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 26. ágúst 2009 08:01

Fréttablaðið, 26. ágú. 2009 03:13

Bestu genin í íslensku konunni

mynd
„Við búumst við um 18 keppendum og konurnar koma úr mismunandi áttum," segir Gemma Taylor Magnússon, fyrrum sterkasta kona Bretlands, en hún ásamt eiginmanni sínum, Benedikt Magnússyni, skipuleggur nú keppnina Sterkustu konu Íslands sem fram fer í Vetrargarðinum í Smáralind í október.

Kraftakeppni kvenna hefur ekki verið haldin áður með jafn stóru sniði hér á landi en allur ágóði af keppninni rennur til Krabbameinsstöðvar Íslands - bleiku slaufunnar.

„Ég held að íslenskar konur hafi eina bestu genablöndu í heimi hvað varðar styrk og líkamsbyggingu," segir Gemma.
- jma

Gemma Taylor Magnusson