Hvert stefnir Evrópumeistarinn Auðunn Jónsson eftir sigurinn í Finnlandi? Senda í tölvupóst
Laugardagur, 28. mars 2009 17:53

Morgunblaðið

Þriðjudaginn 12. maí, 1998 - Íþróttir

Hvert stefnir Evrópumeistarinn Auðunn Jónsson eftir sigurinn í Finnlandi? Í fremstu röð á HM í haust

"ÉG er rétt að átta mig á þessu núna," sagði Auðunn Jónsson kraftlyftingamaður er Morgunblaðið náði tali af honum í Finnlandi í gær. Hann varð á sunnudaginn Evrópumeistari í kraftlyftingum í 125 kg flokki, lyfti samtals 950 kg á móti sem fram fór í bænum Sotkamo. Auðunn lyfti 22,5 kg meira en heimamaðurinn Pasi Martkainen sem hreppti silfur. Bronsverðlaunin komu í hlut Rússans Evgeny Birum, sem lyfti 910 kg. Auðunn lyfti 360 kg í hnébeygju, 230 kg í bekkpressu og 360 kg í réttstöðulyftu. "Þetta er það þyngsta sem ég hef lyft á alþjóðlegu móti, en ég hef gert betur á mótum heima," sagði Auðunn.
 
Auðunn er annar Íslendingurinn sem verður Evrópumeistari í kraftlyftingum, hinn er Magnús Ver Magnússon, en hann vann sinn þyngdarflokk á mótunum 1989 og 1991. Auðunn er 26 ára ráðgjafi hjá Stuðlum, meðferðarheimili fyrir unglinga í Grafarvogi. Hann hefur æft kraftlyfingar frá 12 ára aldri og keppti fyrst 14 ára. "Ég hef haft áhuga á lyftingum frá því ég var barn. Þegar ég var tólf ára bjó ég rétt við líkamsræktarstöð í Engihjalla. Þar æfðu þeir bestu, s.s. Jón Páll Sigmarsson, Magnús Ver Magnússon og Hjalti Árnason. Ég leit inn á æfingu og var strax vel tekið og boðið að æfa með þeim. Jón Páll var að sjálfsögðu fyrirmyndin, enda stórkostlegur íþróttamaður og góð fyrirmynd. Frá þessum tíma hef ég lagt hart að mér og er nú loks að uppskera laun erfiðisins."

Hefur þú lengi stefnt á gull á stórmóti?

"Svo sannarlega, en herslumuninn hefur oft vantað. Í tvígang hef ég hafnað í öðru sæti á EM unglinga og jafnoft á HM unglinga. Þá varð ég í þriðja sæti á HM fullorðinna en þetta var í fyrsta skipti sem ég tek þátt í EM fullorðinna. Ég lagði því allt í sölurnar að þessu sinni þar sem ég vissi að ég yrði í baráttunni um gullið."

Var þetta eins öruggur sigur og úrslitin gefa til kynna?

"Fyrir síðustu greinina, réttstöðulyftu, hafði ég góða forystu, en ég hef oft átt það til að reyna að taka meiri þyngdir en nauðsynlegt hefur verið. Fyrst lyfti ég 330 kg, því næst 350 og loks 360 kg, en aðalkeppinautur minn fór aðeins upp með 342 kg."

Hvað er næst á dagskránni hjá þér?

"Það er heimsmeistaramótið sem fram fer í Úkraínu í haust og þessi sigur er vissulega gott veganesti. Ég fann á mótinu um helgina að ég á nokkuð inni því ég gerði nokkur mistök, bæði í hnébeygjunni og í bekkpressunni. Þau þýddu að ég þurfti að endurtaka lyftur og það kostaði kraft. Nú er bara að leggja harðar að sér við æfingar og bæta við sig líkamsþyngd. Nú er ég 116 kg og því nokkuð frá hámarksþyngd í flokknum."

Hvað æfir þú mikið?

"Ég æfi allt að fimm sinnum í viku og að jafnaði fjóra klukkutíma í hvert sinn."

Verður ekki meiri mótspyrna á HM?

"Það þarf ekki að vera, því sterkar þjóðir sem láta mikið að sér kveða á EM, eins og Rússar og Úkraínumenn, eru einnig með á HM. En vissulega eru keppendur frá fleiri þjóðum á meðal keppenda á HM. Ég hef sett stefnuna á baráttuna á HM og að vera þar í fremstu röð."

Hefur stefnan síðan verið sett á að feta í fótspor Jóns Páls og Magnúsar í kraftakeppni viðsvegar um heiminn eftir nokkur ár?

"Að því hef ég ekki leitt hugann vegna þess að ég er ekki tilbúinn að hætta keppni í kraftlyftingum nærri strax. En það er aldrei að vita hvað framtíðin ber í skauti sér."

 

Grein eftir: Ívar Benediktsson