ÚrklippurVíkurfréttir.is Sturla sterkastur
Íþróttir | 24. júlí 2010 | 13:03:43
Sturla Ólafsson sigraði nýverið í keppninni um Sterkasta mann Íslands, -105 kg annað árið í röð.
Fyrsta greinin var lóða og kútakast yfir rá á tíma. Kastað var 15 kg
bjórkút, tveimur 16 kg ketilbjöllum, 20 kg bjórkút og 25 kg lóði yfir
3,65m. Sturla sigraði í þessari grein á 17,02 sek. Næsti á eftir var á
19,21 sek. Frábær spenna í þessari grein. Næsta grein var 50 kg Sirkus handlóð á 90 sek. Andri Björns tók mjög
traustan sigur með 13 lyftur. Sturla deildi þar öðru sætinu með 10
lyftur.
Þriðja grein var vel þungur trukkadráttur með traktor upp mikinn halla
og dregið 25 metra á hellulagðri gangstétt. Aðeins tveir menn gátu
klárað og það voru reynsluboltarnir, Árni Freyr og Sturla, en Sturla var
með betri tíma, 58,4 sek. en Árni fór brautina á 74,65 sek.
Næsta grein var 105 kg bóndaganga, 25 metrar á tíma. Eina ferðina enn
var mikil spenna í greininni og Árni Freyr og Sturla voru næstum jafnir á
tíma en Stulli vann með 10,03 sek á móti 10,75 sek.
Síðasta greinin var Atlassteina hleðsla, 90, 110, 125 og 140 kg. Úrslit
þessarar greinar kom mörgum á óvart þar sem Andri Björns var sá eini sem
náði að klára greinina. Steinarnir voru á grasi og þegar menn eru með
harpix á puttunum festist grasið bara í harpixinu og það truflaði
vissulega keppendur. Árni Freyr var í öðru sæti í þessari grein og
Sturla í þriðja, báðir undir 20 sek. með 3 steina.
Annar Suðurnesjamaður, Daníel Sæmundsson tók þátt í keppninni og hafnaði í 8. sæti.
|