|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Laugardagur, 18. september 2010 17:15 |
Úrklippur Kraftaheimar.net - 18.september 2010
Stórskjóðan í úrslit á Sterkasti Maður Heims!
 Stefán Sölvi Pétursson aflraunajötunn
Þar kom að því að allt gekk upp hjá Stefáni Sölva á stórmóti og í
undankeppni Sterkasta manns heims í Sun City í Suður Afríku varð hann
annar í sínum riðli með glæsibrag. Það eru orðin nokkur mögur ár síðan
að klakverji hefur komist áfram í þessari keppni og óska Kraftaheimar
honum til hamingju með þennan áfanga á kraftaferlinum. Stebbi hefur
verið duglegur að senda inn létt keppniságrip til Sunnu Hlínar á
Vöðvafíkn og er mönnum bent á að fylgjast grannt með þeirri ágætu
vefsíðu.
Það eru 10 molar sem komast áfram í úrslitin og þar af eru tveir
frægir og mjög öflugir molar sem teljast sigurstranglegir en það eru
þeir Zydrunas Savickas Litháen og Derek Poundstone USA..Vonum bara að
Stebbi geti samt eitthvað saumað að þeim en enginn vinnur svona mót
fyrirfram og nokkrum sinnum hafa óvænt úrslit orðið..
ÞEIR SEM KOMUST ÁFRAM:
Brian Shaw / Stefán Sölvi Pétursson
Derek Poundstone /Terry Hollands
Travis Ortmeyer / Ervin Katona
Nick Best /Zydrunas Savickas
Jason Bergmann /Mikhail Koklyaev
|