|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Laugardagur, 18. september 2010 17:21 |
Úrklippur Innlent | mbl.is | 18.9.2010 | 15:41
Stefán Sölvi í úrslit með þeim sterkustu
 Stefán Sölvi Pétursson er Sterkasti maður Íslands. mbl.is/Jakob Fannar Sigurðsson |
Stefán Sölvi Pétursson aflraunamaður er kominn í
úrslit í keppninni „Sterkasti maður heims“. Keppnin fer fram í Sun City í
nágrenni Jóhannesarborgar í Suður-Afríku. Stefán
Sölvi sigraði í keppninni „Sterkasti maður Íslands“ í júní sl. og vann
sér rétt til að keppa um titilinn „Sterkasti maður heims“. Þá keppni
hafa tveir Íslendingar unnið, Jón Páll Sigmarsson og Magnús Ver
Magnússon. Keppnin í Suður-Afríku hófst sl.
miðvikudag og nú er orðið ljóst að Stefán Sölvi kemst áfram í úrslitin
sem fram fara í næstu viku.
Sjá vefinn vodvafikn.net
|