Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 27. september 2010 13:37

Úrklippur

Dv Föstudagurinn 24.september

MAÐUR DAGSINS

Stefán Sölvi Pétursson náði þeim glæsilega árangri að hampa fjórða sætinu í keppninni um sterkasta mann heims. Hann segir gott að finna allt erfiðið bera einhvern árangur og að hann stundi það reglulega að draga trukka og lyfta níðþungum steinum.

Hver er maðurinn?
„Hann er Stefán Sölvi Pétursson kraftlyftingakappi.“


Hvað drífur þig áfram?
„að reyna sífellt að bæta mig. Og það hvað mér finnst gaman í kraftlyftingum, það drífur mig mikið áfram.“

Hvar ertu uppalinn?
„Í reykjavík og dalasýslu.“


Hver er þín fyrsta minning úr æsku?
„Þegar ég var í sumarbústað á laugarvatni með foreldrum mínum og bróður.“

áhugamál fyrir utan kraftlyftingar?
„Ég hef mjög gaman af tónlist og amerískum ruðningi.“


Hvernig tilfinning fylgir því að hafa náð fjórða sætinu í Suður-afríku?

„Hún er mjög góð sú tilfinning og fær mig til að langa að gera enn betur.“


Hvernig var að keppa á móti sterkustu mönnum heims?

„Það var virkilega gaman að fá að spreyta sig gegn þeim og finna að allt erfiðið hefur borið einhvern árangur.“