|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Laugardagur, 25. apríl 2009 00:00 |
Arborg.is | Fréttir af íþróttafólki og íþróttamálum í ÁrborgFréttir af vaxtaræktarfólki
Ungur Stokkseyringur Heiðar Ingi Heiðarsson, varð nú um helgina Íslandsmeistari karla í fitness á Íslandsmeistaramóti IFBB sem haldið var á Akureyri. Líklegt er að Heiðar sé yngstur til að vinna þennan flokk, þar sem unglingaflokkur er fyrir 21 árs og yngir (miðast við afmælisdag) og Heiðar er einungis 21 árs gamall. Hann verður 22ja í ágúst.  Heiðar varð Íslandsmeistari unglinga í fyrra í fitness og vaxtarrækt.
Kristín H. Kristjánsdóttir frá Selfossi varð þrefaldur Íslandsmeistari í fitness

Mótið var haldið á Akureyri um páskana. Mótið samanstóð af þremur Íslandsmótum, Íslandsmótinu í vaxtarrækt, Íslandsmótinu í módelfitness og Íslandsmótinu í fitness. Að þessu sinni voru 79 keppendur mættir til keppni víðs vegar af landinu sem er þátttökumet frá því mótshaldarar hófu að halda fitnesskeppnir árið 1994. Líkamsrækt í hinni ýmsu mynd á því vaxandi vinsældum að fagna. Árangur Kristínar þótti sérstaklega glæsilegur á mótinu. Á meðfylgjandi mynd er hún á verðlaunapallinum að taka á móti verðlaununum úr hendi Önnu Bellu, sem er einmitt þjálfari hennar |
|