Sterkasti Maður Íslands 2009Við erum hér stödd í Fjölskyldugarðinum þar sem
fyrsta grein mótsins var að ljúka. Fyrsta parið til að keppa voru Stefán
Sölvi og Sturla Ólafsson en þeir voru á mjög góðum hraða. Smá
misskilningur með endalínuna urðu svo að það tók af þeim báðum smá tíma
en engu að síður þá urðu þeir 2 af 3 sem kláruðu þessa grein. Boris
sigraði þessa grein á ótrúlega góðum tíma og var mjög snöggur. Heiðar
Geirmundsson slasaðist á kálfa og er því hættur í dag. En nú er að
hefjast helluburður og munum við setja inn úrslitin um leið og greininni
líkur. 1.sæti Boris 2.sæti Stefán Sölvi 3.sæti Sturla 4.sæti Páll Logason 5.sæti Grétar Sigurðarson 6.sæti Heiðar Geirmundsson Húsafellsburður 1.sæti Stefán Sölvi 3 hringir 66,40metrar 2.sæti Boris 29,20 metrar 1 hringur 3.sæti Grétar Sigurðarson 23 metrar hálfur hringur 4.sæti Sturla 21,55metrar hálfur hringur 5.sæti Páll Logason 20,50metra 1 hringur
Trukkadráttur Drukkadrættinum var að ljúka hér hjá ráðhúsinu í Reykjavík og sigraði
Stefán Sölvi á tímanum 18,84sek. Boris var annar á 19,41sek. Sturla
heldur þriðja sætinu en hann var 21,44sek. Palli var með tímann 21,97sek
og Grétar með 23,47sekúndur. Stefán 18.84 Boris 19,41 Sturla 21.44 Palli 21.97 Grétar 23,47
eppnin hélt áfram í Hlégarði, Mosfellsbæ klukkan
fjögur og var þar fyrsta greinin over head medley en þar þurftu
keppendur að lyfta upp fyrir haus: 50kg handlóðum, 100kg steini, 130kg
öxuli og 150kg drumbi. Fyrstur var Boris sem náði fínum tíma 36sek með
allar greinarnar. Annar var Páll Logason en hann lyftu þrem hlutum á
tímanum 25.02 en náði ekki að koma drumbinum upp. Þriðji var Stefán
Sölvi með þrjá hluti á tímanum 31,85sek en hann náði ekki að læsa
olbogum með drumbinn uppi. Grétar og Sturla náðu handlóðunum ekki upp en
Grétar meiddist á öxl í handlóðunum. Hér er staðan því aftur orðin jöfn á milli Stefáns Sölva og Borisar. Næsta
grein voru atlas steinar en þeir eru 110kg - 125kg - 140kg - 155kg og
172kg. Stefán Sölvi tók þessa grein á ótrúlegum hraða og kláraði alla
steinana á 19,68sek ! Annar var Boris með 4 steina á 39,21sek. Þriðji
var Páll Logason með 3 steina á tímanum 14,49sek. Fjórði var Sturla með 1
stein á 6,25 en hann lenti í því að rörið sem steinninn átti að fara
upp á og féll í jörðina rétt áður en steinnin komst upp á það. Hrikalega
leiðinleg mistök hjá mótshöldurum þar og virtist öll orka vera búin hjá
Sturlu því hann koma steininum ekki aftur upp. Fimmti var Grétar en
hann náði einnig bara fyrsta steininum upp en var á verri tíma 9,47sek
en hann var ennþá slæmur í öxlinni. Stefán Sölvi er því komin með forustuna og hér varð Boris að sigra næstu grein til að tryggja sér sigur. Síðasta
greinin var ein sú furðulegasta sem ég hef séð. Keppendur áttu hér að
fara undir stöng eins og um hnébeygju var að ræða og lyfta stönginni upp
í ákveðna hæð svo að hávaði heyrðist frá tækinu. Stefán Sölvi lyfti hér
598kg, Borist annar með 505kg, Páll Logason með 461kg, Stulli með 421kg
og Grétar í 385kg. Páll Logason og Boris
slösuðust báðir í þessari grein og við vonum að þessi grein verið ekki
höfð aftur þar sem hún er slysagildra og virkilega leiðinleg á að horfa.
Eitthvað hefur því keppendum Afraunameistarans fækkað eftir þessa
keppni. Það er því
komið á hreint ! Stefán Sölvi Pétursson er Sterkasti Maður Íslands 2009
og fulltrúi Íslendinga á World Strongest Man 2009 ! Innilega til hamingju með þetta Stefán
|