|
Laugardagur, 24. janúar 2009 14:50 |
Bollan sigrar Bekkpressumót Metal
|
Bekkpressumót Metal fór fram á Eiðistorgi í dag kl 13.00, mótið gekk hratt og vel fyrir sig og lauk rúmum klukkutíma síðar. Valdi Bolla í 140kg flokki sigraði mótið þegar hann tók 260kg í síðustu lyftunni og tryggði sér þar með stigabikarinn sem Sigfús Fossdal vann í fyrra. Sigfús keppti ekki í dag þar sem hann er úti að keppa á American Cup en við munum segja betur frá því í kvöld hvernig það mót fór. Einar Örn Guðnason sem ég held alveg örugglega að hafi verið að keppa í fyrsta skipti tók 135kg í 75kg flokki og fékk því aukalyftu til að reyna við Íslandsmet en sú lyfta fór ekki upp. Ísleifur sigraði 90kg flokk með 222,5kg lyftu. Í 100kg flokki munaði 2kg á fyrsta og öðru sæti en Hemmi tók 202kg en Svavar 200kg. 110kg flokk sigraði Ingvar Jóel, hinn ódrepandi með allar lyftur gildar 180kg - 190kg - 200kg. Grétar Sigþórsson sigraði 125kg flokkinn með 210kg lyftu en Bjarki féll úr með þrjár 200kg lyftur ógildar. Á óvart kom að hinn breiði Jón Benóny féll úr keppni þegar hann fékk allar 280kg lyfturnar. Myndirnar eru að hlaðast inn og munu birtast á síðunni í kvöld. Til að sjá sundurliðuð úrslit smellið á lesa meira...
Karlar75kg flokkur
Bergur Már Flosason 74,8kg
 90kg - 100kg - 100kg 82,5kg flokkur
2.sæti Steinn Hermann Sigurðarson
60kg -70kg - 80kg
| 1.sæti Einar Örn Guðnason 79.5kg
 125kg - 135kg - 135kg Fékk aukalyftu til að reyna við Íslandsmet 145kg | 000000000000000 |
90kg flokkur2.sæti Sindri Geirsson
 100 - 110 - 110 | 1.sæti Ísleifur Árnason 88,9kg
 200kg - 210kg - 222,5kg | 000000000000000
|
100kg flokkur2.sætiSvavar Smárason 185kg - 185kg - 200kg | 1.sæti Hermann Haraldsson 99,9
190kg - 200kg - 202kg | 000000000000000 |
110kg flokkur2.sæti Sigurjón Ólafsson 100,7
 135kg - 145kg - 155kg
| 1.sæti Ingvar Jóel Ingvarsson 105,6kg
 180kg - 190kg - 200kg | 000000000000000
|
125kg flokkur
Féll úr Bjarki Elí Ólafsson 112,3kg200kg - 200kg - 200kg
| 1.sæti Grétar Kristófer Sigþórsson 112,3kg
200kg - 210kg - 220kg
| 000000000000000 |
+125kg flokkur
Féll úr Jón Benóny Reynisson 136,1kg
 280kg - 280kg - 280kg 140kg flokkur
1.sæti Þorvaldur Bolla Kristbergsson 138,3kg
 250kg - 260kg - 260kg
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 28. janúar 2009 23:15 |