|
Miðvikudagur, 28. janúar 2009 19:59 |
Sigfús sigrar +140kg fl á American Cup Sigfús á HM í Vín 2008 Ljósm. apcpowerli fting.com |
Sigfús Fossdal fór til Los Angeles um helgina til að keppa í kraftlyftingum á American Cup. Sigfús var í þyngsta flokknum, +140kg. Hann sigraði sinni flokk með 1072,5kg í samanlögðu en hann tók 405kg í hnébeygju, 320 í bekk og 347,5kg í réttstöðu. Tveir aðrir keppendur voru með honum í flokk en það voru þeir Lance Karabel í 2.sæti og Thad Coleman en hann datt úr keppni en hann náði 387,5g í beygjunni. Lance Karabel náði 1062,5kg í total með tölunum 442,4kg í hnébeygju, 287,5kg í bekk og 332,5kg í réttstöðu.
Sigurvegari mótsins var Mark Bell í 140kg flokki en hann náði 1070kg í samanlögðu með lyfturnar 382,5kg - 367,5kg - 320kg. Hann fékk 1000 dollara að launum. Í kvennaflokki var það Leonetta Richardson í 67kg flokki sem var með mest í samanlögðu eða 507,5kg og fékk einnig 1000 dollara. Hún var með tölurnar 182,5kg - 137,5kg - 187,5kg. Myndbönd af þyngstu hnébeygjunum má sjá hér.
|
|
Síðast uppfært: Miðvikudagur, 28. janúar 2009 21:01 |