Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 20. júní 2009 17:30

Sigfús Aflraunameistari Íslands 2009

Í dag fór fram Aflraunameistari Íslands á Akueyrir sem haldið var af Aflraunfélagi Akureyrar. Sigfús Fossdal Sigraði mótið með 19 stigum og var Úlfur Orri annar með 14 stig. Í þriðja sæti var Jón Þór Ásgrímsson, fjórði var Stefánsson og fimmti Hallgrímur (Frændinn).

Mótið hófst á Flugsafni Akureyrar þar sem Flugvéladráttur átti að fara fram. Samkvæmt minni bestu vitund er þetta í annað skipti á Íslandi sem þessi grein fer fram. Þegar enginn keppandi gat komið flugvélinni af stað þá var ákveðið að breyta greininni og í staðinn átti að draga pikkup-inn sem kaðallinn var festur í. Slatta af börnum var skellt á pallinn og svo hófst hönd yfir hönd. Jón Þór sigraði þá grein á tímanum 32,10 sek en þetta voru 25 metrar. Annar var Sigfús Fossdag á 33,10 sek og þriðji var Frændinn á 35,30 sek. Fjórði var Stefánsson á 36,30 sek og Úlfur fimmti á 37,19 sek. 

Næsta grein fór fram á Ráðhústorgi en það var 280kg Uxaganga sem búin var til af Jóni Þóri og þurfti að labba með hana 25 metra. Sigfús sigraði þá grein á tímanum 20,8 sek, annar Úlfur Orri á 25,5 sek en þeir voru þeir einu sem gátu klárað gönguna. Þriðji var Jón Þór en hann fór 19,5 metra, fjórði var Stefánsson með 10,1 metra og Frændinn með hálfan metra. 

Þriðja greinin var svo Drumbalyfta sem hönnuð var af Jóni Þóri, en drumburinn var 100kg. Sigurvegarinn í þessari grein var Sigfús með 5 endurtekningar, Stefánsson í öðru með 4 lyftur, þriðji var Úlfur Orri með 2 lyftur. Jón Þór og Hallgrímur komu ekki drumbnum upp. 

Bændaganga búin til af Jóni Þóri. 120kg í hvorri hönd, 25metra

1.sæti Úflur Orri 10,5sek
2.sæti Sigfús Fossdal 11,9sek
3.sæti Jón Þór Ásgrímsson 17,8sek
4.sæti Árni Freyr Stefánsson 42,5sek
5.sæti Hallgrímur - kláraðið ekki

Fingurinn 150kg

Enginn kláraði

 

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 23. júní 2009 10:40