|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 23. september 2009 12:39 |
Inga Björk fær fjögur silfur verðlaun Í síðustu viku kepptu María og Inga Björk á Vesturevrópukeppninni í kraflyftingum sem fram fór í Noregi.  Ljósm. Inga Björk María keppti í -67,5kg flokki þar sem hún byrjaði á að fá allar lyftur ógildar í hnébeygjunni þar sem hún reyndi við 160kg. Í þriðju tilraun í bekknum tók hún 102,5kg sem tryggði henni silfur í sínum flokki. Fyrir réttstöðuna fékk hún svo brons þegar hún tók 167,5kg. Inga Björk var að keppa á sínu fyrsta erlenda móti og 85kg í hnébeygjunni, 65kg í bekkpressunni og 110kg í réttstöðunni. Hún var með 260kg í samanlögðu og tryggði það henni 2.sæti í -60kg flokki en hún fékk einnig silfur verðlaun fyrir allar lyfturnar. Nú á stuttum tíma hafa 3 konur farið út að keppa fyrir Íslands hönd og vonandi heldur þeim áfram að fjölga. Frábært væri nú að fara einhvertíma í stelpu keppnisferð erlendis :) Samkvæmt heimasíðu KRAFT keppir María næst erlendis á Heimsmeistaramóti IPF í kraftlyftingum sem fer fram á Indlandi í nóvember. Ljósm.Inga Björk
 Ljósm.Inga Björk
|