Í gær, laugardaginn 16.október fór fram í annað sinn keppni í Rolling Thunder. Ekki náðist að slá 100kg Íslandsmetið en þegar komið var í 85kg stóðu tveir menn eftir; vaxtarræktarkapparnir Maggi Bess og Andri Björns. Gripið var nú farið að segja til sín en þar sem finna þurfti sigurvegara var þyngt upp í 90kg. Eftir margar tilraunir var lækkað niður í 86,25kg sem Andri Björns náði á endanum að lyfta upp.
Í kvennaflokki börðust systurnar Jófó og Alma og hafði yngri systirin, Alma betur þegar hún náði að lyfta upp 35kg. Smellið á nánar til að sjá nánari úrslit.