|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Föstudagur, 05. mars 2010 05:40 |
Kristín Kristjáns í 5.sæti ! Fyrsta degi Arnold Classic var að ljúka með úrslitum í Fitness og Figure Master Amatuer. Við mættum snemma svo við myndum ekki missa af neinu, okkur til mikillar mæðu voru þeir búnir að bæta við enn einni keppninni: Bikini Competition. Eitt orð yfir það HRÆÐILEGT ! Við þurfum að horfa á HUNDRAÐ stelpur í ömurlegu formi keppa á móti hvor annarri í bikiní keppni og þetta tók ótrúlega mikin tíma. En svo kom loksins að Figure Master Amatuer þar sem Kristín Kristján var að keppa og lenti hún í 5.sæti.
Katrín Eva er að keppa í Figure Amatuer flokki F (hæðsti hæðarflokkurinn) en þar voru þær 6 í flokki. Katrín Eva er því komin áfram í úrslitin sem fara fram á laugardaginn á EXPO-inu. Maggi Bess vigtaðist 101kg í dag og keppir í +100kg flokki Vaxtarrækt Amatuer á laugardaginn. Allar myndir HÉR (flickr albúm) Myndirnar á Facebook
|
|
Síðast uppfært: Föstudagur, 05. mars 2010 06:39 |