Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 23. júní 2010 10:13

Ferðasaga Hafþórs frá Úkraínu


Ljósm. UNIAN photo
 
Það var smá skjálfti í mér þegar ég lagði af stað til Úkrainu enda í fyrsta skipti sem ég fer í svona langt ferðalag og hvað þá einn! Fyrst flaug ég til Kaupmannahafnar svo til Warsaw þar sem ég hitti Nikolaj Hansen sterkasta mann Dana. Þegar við lentum í Lviv í Úkrainu tók á móti okkur maður sem keyrði okkur til Truskavets sem er 2 tíma keyrsla. Þegar við komum uppá hótel Geneva hittum við liðsfélaga okkar, Tarmo Mitt, Sebastian Kurek og Vladimir Glushko og liðið frá Úkrainu.
Ljósm. UNIAN photo

Daginn eftir: Grein nr. 1 var timbercarry 300kg við rétt töpuðum þeirri grein. Sem var í rauninni mér að kenna, ég missti gripið við endalínu sem var mjög svekkjandi því ég var á undan liði Úkrainu.
 
Grein nr. 2 var Vikingpress 280kg tveir að gera í einu, við töpuðum þeirri grein en ég tók ekki þátt í henni.
 
Grein nr. 3 var risahandlóð 90kg við töpuðum þeirri grein líka og aftur tók ég ekki þátt.
 
Grein nr. 4 var dekkjavelta sem við unnum, ég tók þátt í henni og gekk mjög vel.
 
Grein nr. 5 var 320kg cardeadlift sem við töpuðum. Mitt lið tók 30 reps hitt 36 reps sem var þó gott fyrir okkar lið, þeir voru með hrikalegan monster sem á 450kg í réttstöðu.
 
Grein nr. 6 var 180kg atlas steinn á reps við unnum þessa grein 16 – 10 minnir mig. Ég tók 5 reps fyrir mitt lið.
 

Ljósm. UNIAN photo

 
Grein nr. 7 var pullpush við töpuðum henni og tók ég þátt í þessari kjánalegu grein.
 
Mótið var haldið beint fyrir neðan hótelið. Það var stappað af áhorfendum allt í kring. Það tók mjög á að ferðast einn og þá sérstaklega á þolinmæðina. Ferðin heim tók 1 og hálfan sólarhring. Það var mjög ljúft að komast heim í faðm prinsessunar minnar ( Kolbrún Linda Sigurðardóttir ) !
 
Þetta var griðarlega góð reynsla sem mun endast mér alla ævi ! 
 
 

 Ljósm. UNIAN photo