Mæti á World´s
Strongest Man mótið í toppformi !Stefán Sölvi segir frá Viking Power Challange keppninni
 Stefán á keppninni Ljósm. www.treningsforum.no
|
Jæja þá er maður kominn heim af Viking Power Challenge mótinu sem fram
fór síðustu helgi í Storefjell, Noregi. Þettaer eitt allra flottasta
strongman mót sem fram á hverju ári og ég var virkilega spenntur enda
aldrei verið sterkari :) Við fréttum við komuna að Travis Ortmayer
og Misha Koklyaev hefðu afboðað komu sína en það hefði verið flott að
hafa þá með. Mótið var samt með marga topp menn eins og Brian Shaw,
Richard Skog, Laurence Shalaei, Dave Ostlund, Stoyan Todorchev, Johannes
Arsjö ofl. 12 keppendur mættu til leiks en eftir 4 keppnisgreinar
átti að fækka keppendum í 6 sem myndu svo klára síðustu tvær greinarnar.
Greinarnar fyrir þetta "cut" voru Uxaganga 410kg yfir 20m, loggur á
max, 330kg réttstöðulyfta á reps og 80kg handlóð á reps. Eftir þetta var
svo 505kg risa dekk og svo atlas steinar í lokin.
En þetta var einn
af þessum dögum sem kippa manni niður á jörðina í smá stund. Því í
fyrstu grein, uxagöngu fann ég mikinn herping og rifu hljóð í vinstri
kálfanum og missti lóðin niður á um 15m línunni. Ég tók þau strax upp
aftur og kláraði á tíma sem var ca. 13,4sek var mér sagt. Þannig að ég
var á nokkuð góðri ferð virðist vera. Ég vissi strax hvað hafi gerst en
ekki hvort þetta væri sina skaði eða bara í vöðvanum. Það komu strax
miklir verkir og ljóst var að ég var úr leik. Það tók mig smá tíma að
sætta mig við hvað gerðist en þegar það tókst eftir nokkrar mínútur var
ekkert annað að gera en að hjálpa strákunum og hvetja. Brian Shaw
gjörsamlega rústaði mótinu. Hann er orðinn virkilega öflugur og hann á
góða möguleika á WSM titlinum síðar í ár. Johannes Arsjö stóð sig mjög
vel og náði öðru sæti með Laurence Shalaei í þriðja. Ég spái þeim góðu
gengi á WSM líka.  Top 3 sætin; Johannes Arsjö, Brian Shaw og Laurence Shalaei Ljósm. www.treningsforum.no
Ég kom svo heim á sunnudag og gerði lítið annað en
að kæla kálfann og halda honum uppi. Talaði svo við Ágúst Kárason
bæklunarlækni núna á mánudag og hann sagði mér að þetta væri rifa í
vöðvanum sjálfum og því ekki alvarlegt og tjáði mér að ég geti orðið
heill eftir 3-6 vikur. Frábærar fréttir fyrir mig fyrir utan að ég missi
af víkingnum. En ég get allavega einbeitt mér að mæta á World´s
Strongest Man mótið í toppformi :)
Keppendurnir - Ljósm. www.treningsforum.no
Myndaalbúm frá mótinu Yoke
12,0 Brian Shaw
11,0 Laurence Shahlaei
10,0 David Ostlund
09,0
Espen Aune
08,0 Stoyan Todorchev
07,0 Richard Skog
06,0
Johannes Årsjö
05,0 Stefan Petturson
04,0 Mikkel Leicht
03,0
Nikolaj Hansen
02,0 Paul Pirjol
01,0 Bjørn Andre Solvang | Stokk (LMS) 11,5
Bjørn Andre Solvang 11,5 Brian
Shaw 09,0 Johannes Årsjö 09,0 Richard Skog 09,0 Laurence
Shahlaei 05,5 Paul Pirjol 05,5 Mikkel Leicht 05,5 Espen Aune 05,5
David Ostlund 03,0 Nikolaj Hansen 02,0 Paul Pirjol l
| Drumbalyfta
12,0 Brian Shaw 11,0 Laurence Shahlaei 09,5
Johannes Årsjö 09,5 David Ostlund 07,5 Richard Skog 07,5 Espen
Aune 06,0 Bjørn Andre Solvang 04,5 Mikkel Leicht 04,5 Nikolaj
Hansen 00,0 Paul Pirjol l
| Circus
Dumbell : 12,0 Brian Shaw 11,0 Johannes
Årsjö 09,5 Mikkel Leicht 09,5 Espen Aune 06,5 Paul Pirjol 06,5
Bjørn Andre Solvang 06,5 David Ostlund 06,5 Laurence Shahlaei 04,0
Richard Skog 03,0 Nikolaj Hansen l l .
| Lokastig-6
fóru í úrslit : 47,5 Brian Shaw 37,5
Laurence Shahlaei 35,5 Johannes Årsjö 31,5 Espen Aune 31,5
David Ostlund 27,5 Richard Skog -----6 efstu---------- 25,0
Bjørn Andre Solvang 23,5
Mikkel Leicht 14,0 Paul Pirjol 13,5 Nikolaj Hansen 08,0 Stoyan
Todorchev 05,0 Stefan Petturson
| | | | Úrslit
| | Dekkvelta
: 12,0 Brian Shaw 11,0 Richard Skog 10,0
David Ostlund 09,0 Johannes Årsjö 08,0 Laurence Shahlaei 07,0
Espen Aune
| Atlassteinar : 12,0 Richard
Skog 11,0 Brian Shaw 10,0
Johannes Årsjö 09,0 David Ostlund 08,0 Laurence Shahlaei 07,0
Espen Aune
| |
Lokastaða mótsins 47,5 Brian Shaw 37,5
Laurence Shahlaei 35,5 Johannes Årsjö 31,5 Espen Aune 31,5
David Ostlund 27,5 Richard Skog 25,0 Bjørn Andre Solvang 23,5
Mikkel Leicht 14,0 Paul Pirjol 13,5 Nikolaj Hansen 08,0 Stoyan
Todorchev 05,0 Stefan Petturson
|