Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 09. ágúst 2010 15:28

Stefán Sölvi áttundi á Giant´s Live

Jæja þá er maður mættur frá Póllandi. Þetta var glæsilegt mót í allastaði fyrir utan hvað það mættu fáránlega fáir áhorfendur en veðrið var ekki að hjálpa okkur. Þetta var haldið inn á fótboltavelli sem var stærri en laugardalsvöllurinn. Þannig að keppnisgreinarnar voru á grasi en það var búið að vera mikil rigning síðustu daga þannig að það var mjög blautt og jörðin laus í sér.

1. grein var 150kg bændaganga 40m með snúning. Þetta voru svipuð lóð og gömlu IFSA lóðin þannig að þau voru nokkuð erfið.
 

Ljósm. Maciej Grabowski

2. grein var 450kg uxaganga 20m og 200kg duck walk 10 eða 15m. Já, að bera 450kg á herðunum yfir 20m í rennblautu grasi er eitt það erfiðasta sem ég hef gert haha :) Ég var alveg búinn og náði ekki að klára duck walk draslið nema ca. hálfa leið og var alveg búinn í bakinu og lærunum.
 

Ljósm. Maciej Grabowski
 
3. grein var drumbalyftu þraut. Þrír drumbar 130, 150 og 170kg á tíma. Þegar ég var að "clean-a" 150 drumbinn þá rann ég aðeins til og datt næstum aftur á bak. Tognaði örlítið í bakinu, kláraði pressuna og reyndi ekki við 170 drumbinn. Það var svo bara einn sem náði að klára alla þrjá.
 
Ljósm. Maciej Grabowski
 
4. grein var þraut þar sem 210kg skjöldur var borinn 20m og svo var tveimur hlutum hlaðið yfir línu. Það var cut eftir þessa grein og ég var jafn Darren Saddler í 6.-7. sæti á þessum tímapunkti en topp 6 myndu klára allar 7 greinarnar. Ég hugsaði með mér til hvers að hætta á frekari meiðsli svona stutt fyrir WSM. Þannig að ég tók þessa grein bara rólega eins og æfingu og Darren fór í úrslitin.
 

Ljósm. Maciej Grabowski
 
Alexander Klushev frá Rússlandi var í 4.sæti eftir cut-ið og hætti vegna meiðsla í hamstring. Þannig að þrátt fyrir þetta var mér boðið að halda áfram í úrslitin, en það voru fínar greinar fyrir mig þar. En ég ákvað að nota þetta frekar sem æfingu fyrir worlds-ið og ekki taka neina sjénsa og afþakkaði það.
 
Fer til Rússlands núna aðfaranótt fimmtudags. En þetta er meira sýning en mót og verður á sunnudaginn. Dedd á max, bændaganga, og einhverskonar þraut. Svo verður reynt að setja met í að draga 200+ tonna flugvél.

Keppendur
Zydrunas Savickas - Litháen
Mark Felix - England
Vidas Blekaitis - Litháen
Stoyan Todorchev - Ungverjaland
Krystof Radzikowski - Pólland
Tarmo Mitt - Eistland
Elbrus Nigmatulin - Rússland
M. Sydorychev - Rússland
 

Top 3 sætin Robert, Vitautas og Janusz
Ljósm. Colin Bryce
 
Þannig að Agris Kazelniks sem var fyrir neðan mig fékk að halda áfram í úrslitin. Þar var svo keppt í myllugöngu, kúlusteinum og trukkadrætti. Það var frekar óvæntur sigurvegari frá Litháen, Vytas Lalas, en hann hafði sigrað Vidas Blekaitis vikunni áður í quilifier í Litháen. Öflugur náungi sem á framtíðina fyrir sér.
 

Vitautas Lalas
Ljósm. Colin Bryce

Loka úrslit
1. Vitautas Lalas - Litháen 73pkt.
2. Robert Szczepanski - Pólland 72pkt.
3. Janusz Ku³aga - Pólland 70pkt.
4. S³awomir Toczek - Pólland 62pkt.
5. Daren Sadler - England 49pkt.
6. Agris Kazelniks -Lettland 46pkt.
7. Alexander Klushev - Rússland 30pkt
8. Stefan Solvi - Ísland 24pkt
9. Sebastian Kurek - Pólland 17pkt
9. Arild Haugen - Noregur 16pkt
10. Alex Moonen -Holland 9pkt
12. Kevin Nee - Bandaríkin 5pkt 
Efstu þrír keppendurnir munu keppa á Sterkasti Maður Heims 2010.