|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 12:38 |
Stefán Sölvi kominn í Heimsmetabókina ? Jæja þá er maður kominn heim á klakann eftir skemmtilega ferð til
Rússlands. Ég lagði af stað út aðfaranótt fimmtudagsins 12.ágúst og var
kominn til Moskvu um miðjan daginn að staðartíma. Það var 40+ gráðu hiti
úti en það var fínt miðað við að við fengum hótelherbergi sem var ekki
með loftræstingu. Það var 34 stiga hiti í herberginu sem var alveg að
gera út af við mig. En það gjörsamlega rann af manni svitinn allan
sólarhringinn. Daginn eftir tókum við svo flug frá Moskvu til
borgarinnar Ulyanovsk. Þar er ein af höfuðstöðvum flugfélagsins Antonov
sem rekur einar stærstu cargo flugvélar í heiminum. En markmiðið var að
draga eina 200tonna flugvél frá þeim og reyna að komast í heimsmetabók
Guinness.
 Á laugardaginn vorum við með æfingu til að fínpússa öll
smáatriði og gekk það mjög vel. Svo kom sunnudagurinn, en þá var stór
flugvélasýning og önnur skemmtanahöld í borginni og vorum við stór hluti
af því. Við vorum 9 þarna saman komnir og tókum fyrst 3 greinar sem
strongman sýningu fyrir áhorfendur. En það voru á bilinu 15 þúsund manns
að horfa. Keppt var í bændagöngu, réttstöðu og þraut sem samanstóð af
dekkjaveltu, drumbalyftu og sandpokahleðslu. Við renndum í gegnum þetta
eins og létta æfingu og var ég í "5.sæti" eftir það. Svo kom að því að
við drógum þessa flugvél fislétt en við vorum 9 að því. Ég, Zydrunas
Savickas, Vidas Blekaitis, Mark Felix, Krystof Radzikowski, Stoyan
Todorchev, Elbrus Nigmatulin, Tarmo Mitt og Mikhail Sidorchev. Við vorum
á stiga sem er mun betra og var þetta bara fislétt. Stiginn var stuttur
og við drógum vélina eitthvað nálægt 7 metrum minnir mig. Ég er nokkuð
viss um að 4 menn gætu dregið vélina. En það kemur í ljós í framtíðinni
:)
Allavega öðruvísi og skemmtileg ferð. En nóg komið af blaðri. Ég
þarf að fara að æfa því það styttist í World´s Strongest Man keppnina :)
|