Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 28. ágúst 2010 13:13

Norðurlandamót NSF í Kraftlyftingum 2010

Norðurlandamótið í kraftlyftingum og bekkpressu, opnum flokki, stendur nú yfir í Bergen, Noregi.  Þrír Íslendingar eru að keppa á mótinu. María Guðsteinsdóttir keppti í -67,5kg flokki og opnaði í 160kg í hnébeygju, klikkaði á 165kg en tók það svo í síðustu lyftunni. Opnunarþyngdin í bekknum var 95kg sem hún fékk gilda og tók svo 100kg og 102,5kg. María sigraði sinn flokk með 440kg í samanlögðu. Í 2.sæti var Linda Samuelsson frá Svíþjóð með 422,5kg í samanlögðu en hún opnaði í 102,5kg í bekknum. Þriðji keppandinn í flokknum féll úr í bekknum þegar hún reyndi við 85kg. 

María Guðsteinsdóttir
Ármann
María Guðsteinsdóttir
Ljósm. Sunna Hlín

Làra Bogey Finnbogadóttir frá Akranesi var að keppa á sínu fyrsta erlenda móti og keppt í +90kg flokki. Á Kópavogsmótinu í júní tók hún 100kg í hnébeygju, 60kg í bekk og 130kg í réttstöðu. Í mótinu áðan í Noregi byrjaði hún á 107,5kg í hnébeygju tók síðan 115kg en klikkaði á 120kg. Í bekknum voru allar lyftur gildar; 65kg - 72,5kg - 80kg. Í réttstöðunni voru líka allar lyfturnar gildar; 120kg - 130kg og 140kg. Lára var með 335kg í samanlögðu og hafnaði hún því í 2.sæti en í 1.sæti var Katarina Nokua frá Finnlandi með 575kg í samanlögðu.

Lára Bogey Finnbogadóttir
Kraftlyftingarfélag Akraness
Lára Bogey Finnbogadóttir
Ljósm. Sunna Hlín

 

Auðunn Jónsson varð í 2.sæti í +125kg flokki þar sem hann tók seríuna 380kg - 255kg - 320kg = 955kg. Byrjunarþyngdin í bekknum hjá honum er svo 255kg og 320kg í réttstöðunni. 4 keppendur eru skráðir í hans flokk en einn Fredrik Svensson fékk allar lyfturnar í beygjunni ógildar.

Auðunn Jónsson
Breiðablik
Ljósm. Klaus Jensen
Ljósm. Klaus Jensen  


Sæti
Nafn
Aldur
Þyngd
Land HB
BP
RL
Total
Wilsk
1.sæti
Kenneth Sandvik
40 ára
133,8
Finnland
400kg
320kg
310kg
1030kg
579,68
2.sæti
Auðunn Jónsson
38 ára
142,3
Ísland
380kg
255kg
320kg
955kg
532,51
3.sæti Morten Sørig
39 ára
144,9
Danmörk
360kg
260kg
260kg
880kg
489,28
-
Fredrik Svensson
41 árs
145,4
Svíþjóð
340
-
-
-
-

Síðast uppfært: Mánudagur, 30. ágúst 2010 10:53