Þann 9.október síðastliðinn gerðist sá merki atburður að fyrsti Íslendingurinn náði yfir 1000kg í samanlögðu á kjötinu (án útbúnaðar). Það var enginn annar en deddskrímslið Benedikt Magnússon en hann keppti á móti í Finnlandi sem heitir Bullfarm og tók 1042,5kg í samanlögðu.