|
Skrifað af: Sunnu Hlín
|
|
Sunnudagur, 17. október 2010 15:28 |
Úrslit: Giants Live Tyrkland 2010
Stefán Sölvi: "Þá er keppninni lokið og ég get ekki verið annað en sáttur.  Stefán Sölvi á Sterkasti Maður Heims 2010 Ljósm. Einkasafn
Fyrsta grein var öxull á max. Ég náði 195kg og var frekar sáttur við það enda mjög mikil bæting. Meiddist eitthvað í hægri öxlinni en reyndi samt við 205 sem ég hefði frekar átt að láta ógert. Of mikill andi í gangi kannski hehe :) Zydrunas tók 215, Shalalei tók 205 svo vorum við nokkrir með 195. Öxulinn var svo vigtaður eftir því það voru svo margir með góðan árangur. En munurinn var bara 2,5kg þannig að allir tóku í aðeins minna.
Smellið á nánar til að lesa alla fréttina
Næsta grein var 150kg bændaganga 40m og bera 130kg kút 20m og upp á 140cm pall. Ég fór á móti Brian Shaw, vann hann en endaði í 3.sæti.
Síðan kom ógeðsleg 200kg steypuhella til að bera á max vegalengd. Man ekki hvar ég endaði kannski fjórði en illa rispaður og marinn hehehe!
Réttstaðan var með hliðarhandföngum og 375kg í höndunum. Ég tók 8reps og var það mjög lélegt. Til að mynda tóku Zydrunas og Brian Shaw 20reps. Þarf að æfa repsa úthaldið.
150kg drumbur á reps. Þetta var hræðilegt bara út af miklum verk í öxlinni. Vigtin var ekkert en ég bara gat ekki harkað meira af mér en 2 reps. Svo voru margir þarna sem náðu ekki repsi, sem kom frekar á óvart og var ég því ekki eins neðarlega og ég bjóst við.
Atlas steinarnir voru næstir 120-130-140-160-180kg upp á 140cm. Veit ekki tímann en var allavega í öðru sæti. Brian Shaw var hraður líka.
Lokastaða. ( Það sem ég man )
1. Zydrunas Savickas 2. Brian Shaw 3. Stefán Sölvi 4. Laurence Shalalei
Ég er því tryggður á The World´s Strongest Man 2011 sem er frekar næs múhahaha :)
Kveðja á klakann! Stefán Sölvi"
|