Bikarmót IFBB 2010 Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 20. nóvember 2010 23:52

Vaxtarrækt +85kg

1.sæti Magnús Samúelsson

2.sæti Magnús Bess Júlíusson

3.sæti Grímur Fannar

4.sæti Frank Hansen


Vaxtarrækt -85

1.sæti Sigurður Kjartansson

2.sæti Sigurkarl Aðalsteinsson

3.sæti Júlíus Þór

4.-6.sæti
Anton Eyþór Rúnarsson
Jóakim Árnason
Gunnar Sigurðsson

Vaxtarrækt kvenna

1. Hilda Elisabeth

2. Þorgbjörg

Vaxtarrækt Unglinga

1. Mark Laurence Bargamento

2. Kristófer Andri Agnarsson

Fitness Karla

1. Arnþór Ásgrímsson

2. Kristján Geir Jóhannesson

3. Gauti Már

4. Helgi Bjarnason

5.-8.sæti

Dagur Eyjólfsson
Gunnar Vilhelmsson
Pálmi Hólm Halldórsson
Jón Ásgeir Gautason

Unglingaflokkur Fitness Karla

1. Mímir Nordquist
Mímir Nordquist

2. Bjarni Grétar Jónsson

3. Sveinn Elías Elíasson

4. Youssef Badran  

Kvennaflokkur Fitness -163cm

1. Eva María Davíðsdóttir

2. Hrefna Haraldsdóttir

3. Kristín Egilsdóttir

4. Margrét B.Ólafsdóttir  

Kvennaflokkur Fitness +163cm

1. Ranný Kramer

2. Eva Sveinsdóttir

3. Auður Kristín

4.-8.sæti

Sólveig Regína Biard
Kristín Lúðvíksdóttir
Linda Jónsdóttir
Hrafnhildur Halldórsdóttir
Elín Hrund Guðnadóttir

Unglingaflokkur Fitness Stúlkur -21árs

1. Ragnhildur Finnbogadóttir

2. Erna Guðrún Björnsdóttir

3. Anna Líney Ívarsdóttir

4. Dagný Pálsdóttir

Módel Fitness +167cm

1. Fjóla Björk Gunnlaugsdóttir

2. Hugrún Árnadóttir

3. Sigríður Ómarsdóttir

13 Alexandra Sif Nikulásdóttir
15 María Ólafsdóttir
16 Sunneva Ósk Guðmundsdóttir
18 Beata Wójtowicz
19 Aðalheiður Ýr Ólafsdóttir
20 Hallveig Karlsdóttir
21 Pálína Kristín Pálsdóttir

Módel Fitness -167cm

1. Margrét Hulda Karlsdóttir

2. Kristbjörg Jónasdóttir

3. Dóra Sveinsdóttir

1 Bríet Hjaltalín
2 Elva Katrín Bergþórsdóttir
3 Hafdís Björg Kristjánsdóttir
5 Magdalena Björk Birgisdóttir
7 Olga Helena Ólafsdóttir
9 Rósa Soffía Haraldsdóttir
10 Svala Magnúsdóttir
11 Petrína Ýr Friðbjörnsdóttir

Umfjöllun af Fitness.is:

Um helgina fór fram Bikarmeistaramót Alþjóðasambands líkamsræktarmanna (IFBB) í tengslum við íþróttahátíð og vörusýningu kennda við Icelandic Health and fitness expo.

Konungur steig af stalli í vaxtarrækt

Magnús Samúelsson velti nafna sínum Magnúsi Bess úr sessi eftir harða keppni í yfir 85 kg flokki. Sigur Magga Sam eins og hann er kallaður var án vafa kærkominn fyrir hann enda hafa þeir Magnúsar háð ófáa hyldina sem fram til þessa hefur ávallt lokið með sigri Magnúsar Bess. Magnús Bess er án vafa farsælasti vaxtarræktarmaður landsins og hefur unnið fleiri titla en nokkur annar. Undanfarin ár hefur Maggi Sam verið að bæta sig jafnt og þétt sem gerði honum kleift um helgina að ganga af hólmi sem sigurvegari.

Keppt var í undir og yfir 85 kg flokkum í vaxtarrækt karla auk unglingaflokks. Sigurður Kjartansson sigraði í undir 85 kg flokknum, Magnús Samúelsson í yfir 85 kg flokknum eins og áður sagði og bikarmeistari unglinga varð Mark Laurence Bargamento. Þeir Magnús og Sigurður mættust í úrslitalotu um heildartitilinn í vaxtarrækt. Það kom kannski engum á óvart að Magnús sigraði, en ætla má að Sigurður verði ekki auðveldur viðureignar eftir nokkur kíló í viðbót.

Í vaxtarrækt kvenna voru tveir keppendur, þær Hilda Elísabet Guttormsdóttir og Þorbjörg Sólbjartsdóttir. Báðar sýndu þær fram á miklar bætingar á milli móta og fór svo að Hilda sigraði.

Arnþór Ásgrímsson bikarmeistari í fitness

Fitnessflokkur karla var erfiður. Ekki síst fyrir dómara. Átta keppendur mættu til keppni og óhætt er að segja að sjaldan hafi jafn hörð keppni staðið um efstu sætin. Það kom líka í ljós í úrslitunum að frjálsa stöðulotan hafði úrslitaáhrif. Arnþór Ásgrímsson varð bikarmeistari í fitness. Annar á eftir honum var Kristján Geir Jóhannesson og þriðji var enn einn meistarin sem steig af stalli, Gauti Már Rúnarsson.

Eftir fyrstu lotuna af þremur var Kristján Geir í fyrsta sæti. Gauti Már í öðru og Arnþór í þriðja. Einungis fimm stigum munaði á fyrstu þremur sætunum í heildina. Allt gat því gerst í frjálsu stöðulotunni. Arnþór stóð sig vel í frjálsu stöðulotunni og var að jafnaði í fyrsta til öðru sæti hjá dómurunum í þeirri lotu. Þar fataðist Kristjáni Geir hinsvegar flugið og féll þannig úr fyrsta í þriðja sæti í ljósi þess að þetta litlu munaði á efstu mönnum. Vert er að nefna Helga Bjarnason sem blandaði sér í toppbaráttuna og hafnaði í fjórða sæti. Fyrstu fjögur sætin voru það jöfn að fyrirfram var erfitt að spá fyrir um útkomuna, en til þess voru dómararnir. Niðurstaðan í fitnessflokki karla að þessu sinni sýnir að keppendur þurfa að leggja metnað sinn í frjálsu stöðulotuna, hún er dæmt út frá allt öðrum forsendum en samanburðarloturnar.

Mímir Guðvarðarson Nordquist sigraði í unglingaflokki í fitness. Bikarmótið er að jafnaði ekki opið alþjóðlegt mót en daninn Youssef Badran fékk að keppa sem gestur og var dæmdur eins og hinir í þessum flokki. Hann fékk sömuleiðis fyrsta sæti eins og Mímir þar sem gestir geta ekki orðið bikarmeistarar.

Rannveig Kramer bikarmeistari í fitness kvenna

Alls kepptu 12 keppendur í tveimur fitnessflokkum kvenna, yfir og undir 163 sm. Hver öðrum glæsilegri. Eva María Davíðsdóttir sigraði í lægri flokkum. Hrefna Haraldsdóttir varð önnur og Kristín Egilsdóttir þriðja. Rannveig Kramer sigraði hærri flokkinn, en þær Eva Sveinsdóttir og Auður Kristín Þorgeirsdóttir voru jafnar að stigum þegar að úrslitum kom. Útkoman úr þriðju og síðustu lotunni ræður því hvor fær sætið og fór svo að Eva hlaut annað sætið og Auður þriðja.

Í unglingaflokki í fitness kvenna kepptu fjórir keppendur. Ragnhildur Finnbogadóttir varð bikarmeistari en á eftir henni komu þær Erna Guðrún Björnsdóttir í öðru sæti og Anna Líney Ívarsdóttir.

Margrét Hulda Karlsdóttir bikarmeistari í módelfitness

Módelfitnessflokkarnir voru fjölmennustu flokkarnir að þessu sinni. Alls kepptu 22 keppendur í tveimur hæðarflokkum, undir og yfir 167 sm. Margrét Hulda Karlsdóttir sigraði bæði lægri flokkinn og heildarkeppnina við sigurvegarann í hærri flokknum sem var Fjóla Björk Gunnlaugsdóttir. Keppendur voru hver öðrum glæsilegri og tvísýn keppni á milli efstu sætana. Þær Kristbjörg Jónasdóttir og Dóra Sveinsdóttir urðu í öðru og þriðja sæti í lægri flokknum og fyrrum bikarmeistari Hugrún Árnadóttir varð önnur í hærri flokknum og Sigríður Ómarsdóttir varð þriðja.










Síðast uppfært: Miðvikudagur, 16. nóvember 2011 00:50