Jón Páll Sigmarsson Classic 2010 Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Mánudagur, 22. nóvember 2010 21:12

Mótið Jón Páll Sigmarsson Classic fór fram með Icelandic Health and Fitness Expo núna um helgina. Margir af sterkustu mönnum heims voru mættir til leiks til að heiðra minningu Jóns Páls. En það voru þeir Brian Shaw frá Bandaríkjunum (var í 2.sæti á Sterkasti Maður Heims 2010 , Terry Hollands Sterkasti Maður Englands, Richard Skog, Sterkasti Maður Noregs, Mark Felix frá Englandi og Jeremy Hogg frá Ástralíu. Fyrir Íslands hönd mættu Hafþór Júlíus Björnsson, Páll Logason, Georg Ögmundsson og Stefán Sölvi Pétursson.

Fyrsta grein var hönd yfir hönd þar sem keppendur toguðu upp ullarbagga í gegnum tvö hjól. Hafþór stóð sig frábærlega og kláraði greinina á tímanum 11,46sek. Það komst enginn nálægt þessum tíma en annar var Terry Hollands með 16,65sek og Georg þriðji með 20,42sek.

Önnur grein var réttstöðulyfta þar sem endanum á stórri kerru var lyft upp. Brian, Terry og Mark þurftu að sætta sig við jafntefli en þeir lyftu allir 470kg. Hafþór stóð sig vel og náði fjórða sætinu með 430kg lyftu.

Þriðja greinin var svo 90kg risa handlóð. Brian Shaw rústaði henni auðveldlega með 11 léttum lyftum. Jafnir í öðru til fjórða voru Hafþór, Terry og Mark með 7 lyftur. Hafþór tók samt 8 lyftur en fékk eina ógilda!

Fjórða greinin var svo þyngsta bændaganga sem keppt hefur verið með á Íslandi og hugsanlega í heiminum. En keppendur áttu að bera 205kg lóð í hvorri hönd yfir 10metra braut. Það var bara Mark Felix sem náði því og gerði hann það á tímanum 11,5sek. Annar var Brian með 8,45m og þriðji var Hafþór með 4,21m.

Fyrir síðustu greinina var Ljónið, Hafþór Júlíus í forystu með hálft stig á Brian Shaw og þurfti eina þyngsta steina sería sem nokkurn tímann hefur verið keppt með til að finna út sigurvegarann.

Lyfta átti 155kg og 175kg atlaskúlusteinum, 175kg náttúrusteini, 205kg atlassteini og svo risastórum 241kg náttúrusteini upp á 120cm palla. Georg var búinn að setja flottan tíma á fjóra steina með 22,84sek. Brian tók fyrstu fjóra steinana á einungis 17,73sek og átti frábæra tilraun við 241kg steininn. Munaði mjög litlu. Hafþór kom næstur og vissi hversu hratt hann þurfti að fara með fyrstu 4 steinana til að ná sigri. En hann náði fjóru fyrstu á 22,7sek og þurfti því að lyfta stóra steininum til að ná sigri. Hann náði honum því miður ekki en átti frábærar tvær tilraunir og er ekki annað hægt heldur en að hrósa honum fyrir frábæra baráttu og glæsilegt mót.  Brian vann því steinana, Hafþór annar og Georg þriðji.

Loka úrslit voru því

1. Brian Shaw - 38 stig
2. Hafþór Júlíus - 37stig
3. Mark Felix - 35stig
4. Terry Hollands - 30stig
5. Georg Ögmundsson - 23,5stig
6. Richard Skog - 18,5stig
7. Páll Logason - 18stig
8. Jeremy Hogg - 12,5stig
9. Stefán Sölvi - 12,5stig ( Hætti vegna veikinda )


1. Álafoss Hönd yfir hönd
Arm over arm

Sæti
Nafn
Tími/Metrar
Stig
Stig eftir grein
1.
Hafþór Júlíus Björnsson 11,46 sek 9 9
2.
Terry Hollands 16,65 sek 8 8
3.
Georg Ögmundsson 20,42 sek 7 7
4.
Richard Skog 53,68 sek 6 6
5.
Mark Felix 4 metrar 5 5
6.
Brian Shaw 2 metrar 4 4
7.
Stefán Sölvi Pétursson 2 metrar 3 3
8.
Páll Logason 1,5 meter 2 2
9.
Jeremy Hogg
1 meter
1
1

2. Víkurvagna Réttstöðulyfta
Deadlift

SætiNafn
Þyngd

Stig

Stig eftir grein

1.
Terry Hollands 470kg

8

17

2.
Mark Felix 470kg

8

13

3.
Brian Shaw 470kg

8

12

4.
Hafþór Júlíus Björnsson 430kg

6

15

5.
Stefán Sölvi Pétursson 420kg

5

8

6.
Páll Logason 400kg

4

6

7.
Georg Ögmundsson 360kg

2

9

8.
Richard Skog 360kg

2

8

9.
Jeremy Hogg 360kg

2

3

3. Risahandlóð
Dumbell 90kg

SætiNafn
Fjöldi
Stig
Stig eftir grein
1.
Brian Shaw 11
9 21
2.
Hafþór Júlíus Björnsson 7 7 22
3.
Mark Felix 7 7 20
4.
Terry Hollands 7 7 24
5.
Páll Logason 6 5 11
6.
Richard Skog 5 4 12
7.
Stefán Sölvi Pétursson 3 3 11
8.
Georg Ögmundsson 0 1.5 10.5
9.
Jeremy Hogg 0 1.5 4.5

4. Bændaganga 10m
Farmerswalk 10m

Sæti
Nafn
Tími/Metrar
Stig
Stig eftir grein
1.
Mark Felix 11,50 sek 9 29
2.
Brian Shaw 8,45 m 8 29
3.
Hafþór Júlíus Björnsson 4,21 m 7 29
4.
Georg Ögmundsson 4,13 m 6 16.5
5.
Jeremy Hogg 3,08 m 5 9.5
6.
Terry Hollands 1,2 m 4 28
7.
Páll Logason 1,11 m 3 14
8.
Richard Skog 0 m 1.5 13.5
9.
Stefán Sölvi Pétursson 0 m 1.5 12.5

5. Atlassteinar
King of the stones

Sæti
Nafn
Tími
Stig
Stig eftir grein
1.
Brian Shaw 17,73 sek (4) 9 38
2.
Hafþór Júlíus Björnsson 22,70 sek (4) 8 37
3.
Georg Ögmundsson 22,84 sek (4) 7 23.5
4.
Mark Felix 33,37 sek (4) 6 35
5.
Richard Skog 16,60 sek (3) 5 18.5
6.
Páll Logason 19,62 sek (3) 4 18
7.
Jeremy Hogg 47,1 sek (3) 3 12.5
8.
Terry Hollands 22,21 sek (2) 2 30
9.
Stefán Sölvi Pétursson DNS
12.5

Lokaúrslit

Sæti
Nafn
Heildarstig
1.
Brian Shaw 38
2.
Hafþór Júlíus Björnsson 37
3.
Mark Felix 35
4.
Terry Hollands 30
5.
Georg Ögmundsson 23.5
6.
Richard Skog 18.5
7.
Páll Logason 18
8.
Jeremy Hogg 12.5
9.
Stefán Sölvi Pétursson 12.5


Síðast uppfært: Mánudagur, 22. nóvember 2010 22:07