|
Tekið af heimasíðunni KRAFTAHEIMAR.NET
Jólamót SteveGym í bekkpressu fór fram í dag ásamt viðstöddu fjölmenni þannig að áhorfendur nánast flæddu út úr stöðinni…Búist var við miklu af Ingvari Ingvarssyni sem hafði verið miklar yfirlýsingar fyrir mótið…Það fór samt þannig að yfirlýsingarnar urðu að játa sig sigraðar fyrir raunverulegri getu, en geta Ingvars var samt mikil!…Kappinn tók 300kg í 125kg flokknum sem er jafnt hans besta frá því fyrir ári síðan í Las Vegas..Ingvar fékk ekkert gefins á mótinu því fyrsta lyfta hans með 290kg vær dæmd af þar sem hún seig niður eitthvað þegar hann var að pressa upp en allar lyftur Ingvars voru hægar og seiglukenndar og allan frískleika vantaði. Önnur tilraunin með 300 var mjög þung og virtist toppur en samt fór þessi mikli bekkpressumeistari einhvernveginn upp með 310kg í hrikalegri lyftu þar sem millimetra -pressustríð var háð..ójöfn útrétting og einhver ruggun átti sér stað og lyftan því réttilega dæmd af…Ritstjórinn spáir nú Ingvari 325 á Evrópumótinu í Írlandi næsta sumar ef kappinn æfir eitthvað í sloppi fyrir það mót…300kg lyftan sem er auðvitað klassa-afrek dugði Ringo til að verða yfirburða stigahæstur á Jólamótinu í ár! (Reyndar er þetta fyrsta Jólamót SteveGym!)
Hinn síungi Flosi var heldur betur í stuði í keppninni því þessi 56 ára öldungur bætti sig hvorki meira né minna en um 15kg á bekknum og fór með allar lyftur í gegn og lyfti af miklum hraða og sprengikrafti eins og hann væri 28 ára eða eitthvað…Í 110kg flokknum tók hann seríuna: 190-200-205!…og voru þetta allt skotheldar lyftur og sérlega glæsilega gerðar. Fyrir þetta hlaut Spiderinn önnur bestu stigaverðlaun mótsins og var vel að því kominn eftir að hafa loksins náð 200kg múrnum á bekk.
Bjarki hriki tók einnig 200kg múrinn í fyrsta sinn en hann varð annar í 125kg flokknum á eftir Ingvari. Bjarki fór með allar lyftur létt í gegn og virtist eiga talsvert inni en nýji sloppurinn virtist alveg smellpassa kappanum sem var í hörkufíling á þessu móti eins og undanfarið. Bjarki vann þriðju stigaverðlaun mótsins en fjórða bikarinn vann Einar Guðnason loftpressa sem var nærri fallinn úr í 100kg flokknum á 180kg sem hann hafði svo í þriðju tilraun. Masterinn sem ætlaði að keppa í tíunni við Flosann meiddist í upphitun við 160 og varð að hætta við keppni en meiðsli hans eru þó ekki talin alvarleg. 9 keppendur mættu því til keppni af 13 skráðum en a.m.k. tveir þeirra létu ekki vita um forföllin og fá því ekki að keppa á næsta Jólamóti. Verðlaun þeirra voru gefin til hjálparstarfs Rauða Krossins.
HEILDARÚRSLIT:
82,5kg.fl.
1. Magnús Ingi Ingvarsson 82,0kg. – 85 – (100)- (100)
90kg.fl.
1. Ardee Medina 85,1kg. 120-130-140
100kg.fl.
1. Einar Örn Guðnason 92,4kg. (180) -(180) – 180
110kg.fl.
1. Flosi Jónsson 105,3kg. 190-200-205
2. Aron Mímir Gylfason 108,5kg. (90) -100 -105
125kg.fl.
1. Ingvar Jóel Ingvarsson 118,0kg. (290) -300 -(310)
2. Bjarki Elí Ólafsson 119,2kg. 175-190-200
3. Sigurjón Ólafsson 118,0kg. 140-150-160
4. Hilmar Skúlason 118,5kg. 130-140-150
STIGAKEPPNIN:
1. Ingvar Ingvarsson 173,0 stig.
2. Flosi Jónsson 122,0
3. Bjarki Ólafsson 115,0
4. Einar Guðnason 113,0
Dómarar á mótinu voru þeir: Hermann Haraldsson, Valdimar R Valdimarsson og Fjölnir Guðmannsson. Ritari og kynnir Var Kári catzilla. Stangarmenn voru: Baldvin Skúlason,Gunnar Freyr Rúnarsson og Þröstur “kverkur” Ólason sem var réttari og yfirstangarmaður.
|