Ingibjörg Evrópumeistari +90kg fl hjá WPF Senda í tölvupóst
Fimmtudagur, 26. júní 2008 00:00

Ingibjörg Evrópumeistari


Ljósm. Sunna Hlín


Þær fréttir voru að berast að Ingibjörg Óladóttir sem er að keppa á Evrópu- meistaramóti WPF náði að bæta heimsmetið í réttstöðulyftu með því að taka 180kg. Hún byrjaði 170,5kg í réttstöðunni og þá búin að bæta heimsmetið um 5kg. Í seinni lyftunni tók hún 180kg og í þriðju reyndi hún við 192,5 (til að reyna bæta heimsmetið í totali um 2,5kg) sem hún náði rétt upp fyrir hné.
Bekkurinn gekk ekki eins vel en fyrsta lyftan var 95kg sem hún klikkaði á. Í annarri lyftu reyndi hún við 100kg sem hún tók en fékk ekki gilda. Í þriðju lyftu tók hún aftur 100kg og fékk hana gilda.
Tölurnar í beygjunum voru 145kg - 155kg - 165kg og fékk svo fjórðu tilraun til að reyna bæta heimsmetið 170,5kg sem hún tók að sjálfsögðu ;) Hún er því Evrópumeistari í +90kg flokki, til hamingju!

Tölurnar: 165 - 100 - 180

Sigfús keppir svo á laugardaginn og stefnir á byrjunarþyngdirnar: 350kg - 300kg - 320kg

Síðast uppfært: Þriðjudagur, 14. október 2008 01:40