Zydrunas Savickas sigrar HM í Drumbalyftu
Ljósm. Marcel Mostert |
Heimsmeistaramótið í drumbalyftu sem haldið var í Litháen var að klárast en það var sýnt beint frá mótinu á Eurosport. Zydrunas Savickas henti upp 200kg sem var skítlétt. Heimsmetið á hann sjálfur, 207,5kg sem hann tók í júní á þessu ári. Zydrunas Savickas er eini maðurinn sem tekið hefur yfir 200kg í drumbalyftunni. Hann reyndi við 212,5kg sem hefði orðið nýtt heimsmet en hann missti jafnvægið, setti logginn ofan á hausinn á sér og missti logginn svo aftur fyrir sig. Þar sem hann var að reyna við heimsmet þá fékk hann aðra tilraun til að bæta heimsmetið. Seinni lyftan var létt og var hann kominn með logginn upp fyrir höfuð og var að klára að læsa þegar hann missti jafnvægið og loggurinn datt. Mikhail Koklyaev tók 195kg í annarri lyftu og reyndi við 200kg í þriðju lyftu sem fór ekki upp. Sebastian Wenta fékk gildar allar lyfturnar sínar og fór upp með tölurnar 180 - 190 og 195kg og setti pólskt með með 195g lyftunni. Öðru til þriðja sætinu þurftu þrír menn að deila með sér en það voru þeir Mikhail Koklyaev frá Rússlandi, Sebastian Wenta frá Póllandi og Oleksanadr Lashyn frá Úkraínu en þeir tóku allir 195kg. Það var ekkert smá fyndið að sjá þessa þrjá ofurvöxnu menn að reyna troða sér saman upp á einn pall. Sigurvegarinn var því Zydrunas Savickas sem tók 200kg en allir bjuggust við að hann myndi taka 212,5 kílóin enda virkaði lyftan mjög létt og eina sem vantaði upp á var smá jafnvægi. Smellið á lesa frétt til að sjá sundurliðuð úrslit.
ATH ! Setti bara inn þær tölur sem ég man bæti inn restinni af tölunum þegar þær koma á netið. 1.sæti Zydrunas Savickas Litháen
Ljósm. Marcel Mostert ? - 200kg skítlétt ! - 212,5kg 2.sæti Mikhail Koklyaev Rússland 190kg - 195kg - 200kg 2..sæti Sebastian Wenta Pólland 180kg - 190kg - 195kg Nýtt pólskt met 2. sæti Oleksandr Lashyn Úkraína Tobias Ide Þýskaland 195kg 5.sæti Krzysztof Radzikowski Pólland 180kg - 0kg - 190kg 5.sæti Ervin Katona Serbía 180kg Agris Kazelniks Lettland 160 - 170 - 185kg Oleksandr Pekanaov Úkraína
Saulius Brusokas Litháen
|