Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 31. desember 2008 19:30

Kreppan hafði betur í bekknum


Gamlársmót KFA í bekkpressu fór fram í dag en 11 keppendur af 15 skráðum  mættu til leiks og voru Jötunheimar fullir af áhorfendum þar sem myndaðist gríðarleg stemming.

Fyrstur til leiks var Hilmir Freyr Guðmundsson en hann er 16 ára og keppti í 67,5kg flokki og opnaði á nýju Íslandsmeti drengja og 3 bætti það þegar hann tók 92.5 – 95 – 100kg.

Í 75kg flokki var Elvar Leonardson en hann fékk allar lyftur ógildar  100 - 100 - 100.

Í 90kg flokki voru Bjarni Grétar Jónsson, Viktor Samuelsson og Freyr Aðalsteinsson. Bjarni Grétar Jónsson tók allar lyftur gildar með tölunar 120 – 130 – 145kg. Viktor Samuelsson fékk allar lyftur ógildar með töluna 105 – 105 – 105kg. Freyr Aðalssteins sýndi unglömbunum hvernig ætti að gera þetta þegar hann tók allar lyftur gildar 140 – 150 – 155kg.  

Í 100kg flokki voru þeir Þórarinn Traustason (betur þekktur sem Tóti Stallon), Hrólfur Jón Flosason og Árni Freyr Árnason. Þórarinn féll út er hann klikkaði þrisvar á 170kg. Hrólfur Jón Flosason tók seríuna 145 – 155 – 155kg. Árni Freyr Árnason tók 185 - 195 – 195.

110kg flokki var Guðmundur Pálsson einn í flokki og tók 192.5 – 200 – 210kg.  

Í 125kg flokki var kreppan, Alfreð Pálsson og var hann sigurstranglegasti keppandinn á þessu móti. Tók hann einnig þyngstu lyftunar og var við það að slá gamalt Akureyrarmet Sigfús Fossdal. Engu munaði að hann hefði tekið hana því nóg var orkan og sprengjukrafturinn rosalegur en hann missti hana yfir andlitið á leiðinni upp. Alfreð endaði með tölurnar 210 – 222.5 – 228,5kg

+125kg flokki var einn í flokki Grétar Skúli og tók hann tölunar 140 – 150 - 155kg.
 
Á þessu móti var Freyr Aðalsteinsson valinn Kraftlyftingarmann ársins. Stigabikar unglingaflokks vann Bjarni Grétar Jónsson.  Stigabikarinn í opnum flokki sigraði Alfreð Pálsson í opnum flokki og fékk farandsbikarinn.

Síðast uppfært: Sunnudagur, 04. janúar 2009 17:29