|
Sunnudagur, 16. nóvember 2008 00:00 |
Úrslit Heimsmeistaramót WPF 2008
Íslendingar búnir að setja 2 heimsmet Fimmtudagur, 13 Nóvember 2008 14:01 - Bekkpressan
Baldvin (Bekkur) Skúlason setti heimsmet í 110kg flokki 50 ára og eldri þegar hann tók 220,5kg en fyrra metið var var 217,5kg sem Vastenburg Elbert frá Hollandi setti 22.júní 2006.
Ingvar Jóel setti heimsmet í 110kg flokki 45 ára og eldri þegar hann tók 245,5kg en fyrra metið var 245kg sem Frederick Goldberg frá USA setti 25.nóvember 2007.
Flosi Jónsson tók 175kg
Hemmi Haralds tók svo 195kg 
Heimsmetin orðin þrjú Fimmtudagur, 13 Nóvember 2008 17:25 Réttastaða
Ljósm. Ísleifur Árnason
|
Kári Elíson setti í dag heimsmet í 82,5kg flokki 55 ára og eldri þegar hann tók 250kg í Réttstöðulyftu. Á morgun mun Ísleifur og Jani keppa í bekkpressu.
Ísleifur sigrar 90kg flokk Föstudagur, 14 Nóvember 2008 11:03 bekkpress Ljósm. Ísleifur Árnason
|
Ísleifur sem keppti í 90kg flokki á Heimsmeistaramóti WPF í dag sigraði sinn flokk þegar hann tók 217,5kg í Bekkpressu en 8 manns voru í þeim flokki. Heimsmetið í þessum flokki eru 230kg sem er met frá 2003.
Palli tekur 1000kg á HM !!! Laugardagur, 15 Nóvember 2008 13:56  Ljósm. Ísleifur Árnason |
Páll Logason tók 1000kg í samanlögðu á Heimsmeistaramótinu !!! Hann tók 375kg í hnébeygju eins og kom fram hér áðan, 275kg í bekkpressu og 350kg í réttstöðunni. Hann er því 6 Íslendingurinn sem tekur 1000kg en þeir sem hafa tekið 1000kg eru Hjalti Úrsus, Maggi Ver, Auðunn Jónsson, Benedikt Magnússon og Sigfús Fossdal.
Valdi Bolla og Sigfús tóku báðir yfir TONNIÐ ! ! Sunnudagur, 16 Nóvember 2008 20:57  Ljósm. Sunna Hlín
|
Sigfús tók 395kg í hnébeygju, 330kg í bekknum og 325kg í réttstöðunni og því með total upp á 1060kg. Hann fékk aukatilraunir til að reyna setja nýtt heimsmet í bekknum með 330kg og nýtt heimsmet í beygjum með 410,5kg. Gamla heimsmetið í beygjum var 410kg og gamla í bekknum var 257,5kg og voru bæði metin sett af John Binkowski árið 1999. Samkvæmt reglum gilda aukatilraunir ekki inn í total og endaði Sigfús því með 1060kg í total og bætti þar með eigið heimsmet í totali um 40kg en gamla metið setti hann í júní á þessu ári. Sigfús vann stigabikarinn í opnum flokki karla. Ljósm. Valdi Kerfis
|
Valdi Bolla sem keppti í -140kg flokki tók 1010kg í total með tölurnar 405 - 285 - 320kg. Hann er því kominn í hóp þeirra sjö Íslendinga sem hafa tekið tonnið í kraftlyftingum. Heimsmetin í -140kg flokki eru 412,5 - 295 - 337,5 og totalið 1045,5kg. Ljósm. Valdi Kerfis
|
Valdi Kerfis sem keppti í -100kg flokki reyndi við 280kg í fyrstu tilraun í hnébeygjunni en klikkaði eitthvað þar náði 280kg í seinni lyftunni og sleppti þriðju tilraun. Í bekknum tók hann 200kg og 280kg í réttstöðunni. Valdi varð í 2.sæti í sínum flokki.
Ljósm. Valdi Kerfis
|
Heisi tók í fyrstu tilraun í hnébeygjunni 360kg. Seinni lyftunni 380kg náði hann ekki upp, í þriðju lyftu fóru 380kg upp en voru dæmd ógild. Í bekkpressunni reyndi hann í öllum tilraunum við 270kg en fékk þær allar ógildar. Heisi datt því út í bekkpressunni og hætti. Ingbjörg datt strax út í hnébeygjunni þar sem hún reyndi við 195kg. Palli varð stigameistari í Unglingaflokki.
|