Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 12. október 2008 19:08

IFSA Sterkasti Maður Íslands 2007
Úrslit

 


Keppnin IFSA sterkasti maður Íslands var haldin í dag í smáralindinni að stöddu fjölmenni. Stefán Sölvi byrjaði að miklum krafti og vann fyrstu 2 greinarnar. Í þriðju greininni sem var dekkjavelta geystist hann af stað og ætlaði sér greinilega að taka hana líka, en þegar hann var kominn hálfa leið kom eitthvað fyrir tvíhöfðann á honum (slitinn?) og þurfti hann því að hætta keppni. Óskum þessum efnilegasta aflraunamanni Íslands von um góðan bata!

Eftir þetta steig Benedikt fram og sigldi örugglega fram úr öðrum keppendum og vann titilinn annað árið í röð.

Mótið var glæsilegt í alla staði og mjög vel að öllu staðið, mótshaldari Magnús Ver og aðrir hjálparmenn fá mikið hrós og verður án efa gaman að fylgjast með IFSA mótum í framtíðinni. Allur keppnisbúnaður til fyrirmyndar.

Nokkrir punktar:
* Kom sterklega fram hversu mikið reynslan skiptir máli í álkubbum yfir haus.
* Jörgen hrikalegur í deddinu, tók 16 lyftur en Benni einungis 10.
* Pétur Bruno með hrikalegt afl tók 3. sætið þrátt fyrir að vera meiddur á hné.
* Georg sannaði sig sem steinakóngur Íslands, vann þá grein með yfirburðum.
* Sigfús Fossdal sýndi að hann er greinilega með nóg af styrknum, vantar bara þol og reynslu.
* Hjörtur Hjartarsson kom á óvart og er greinilega efni í aflraunamann, væri gaman að sjá hvernig gengur ef hann tekur vel á styrknum og þyngir sig aðeins.
* Herkúlesarhaldið virtist skítlétt þegar Pétur Bruno tók á því.
* Hendin á Stefán Sölva var orðin svört í lok mótsins.
 


2.sæti
Georg Ögmundsson
Georg Ögmundsson

 

 

 

 

1.sæti
Benedikt Magnússon
Benedikt Magnússon

 

 

3.sæti
Pétur Bruno
Pétur Bruno
 4.sæti
Jörgen Ljungberg
Jörgen Ljungberg
 5.sæti
Sigfús Fossdal
Sigfús Fossdal
6.sæti
Hjörtur Hjartarson
Hjörtur Hjartarsson
 7.sæti
Stefán Sölvi Pétursson
Stefán Sölvi Pétursson
Sleit tvíhöfða eftir 2grein
8.sæti
Kristinn Ari Hinriksson
 Kristinn Ari Hinriksson
 
 


Mylluganga
Ríflega 300kg

1.sæti – Stefán Sölvi – 59,4m
2.sæti – Georg - 57,95m
3.sæti – Bruno - 56,25m
4.sæti – Benedikt - 50,75m
5.sæti – Sigfús - 36m
6.sæti – Jörgen - 28,65m
7.sæti – Hjörtur - 27,1m
8.sæti – Kristinn Ari – 16,8m
Álkubbar upp yfir haus
90, 100, 110 og 120kg á tíma.

1.sæti – Stefán Sölvi – 4kubbar 48,81sek
2.sæti – Benedikt - 4kubbar 66,49sek
3.sæti – Sigfús - 3kubbar 31,35sek
4.sæti – Bruno - 2kubbar 19,88sek
5.sæti – Georg - 2kubbar 39,22sek
6.sæti – Hjörtur - 1kubbur 13,69sek
7.sæti – Jörgen - 1kubbur 19,57sek
8.sæti – Kristinn Ari – Enginn kubbur
Dekkjavelta
380kg 8 veltur á tíma.

1.sæti – Georg - 24,72sek
2.sæti – Benedikt - 26,48sek
3.sæti – Jörgen - 26,81sek
4.sæti – Bruno - 40,04sek
5.sæti – Hjörtur - 42,12sek
6.sæti – Sigfús - 45,84sek
7.sæti – Kristinn Ari – 61,03sek
8.sæti – Stefán Sölvi
Meiddist á bicep og hættir keppni.

Bíla-Réttstöðulyfta
Ca. 300kg á reps.

1.sæti – Jörgen - 16 lyftur
2.sæti – Benedikt – 10 lyftur
3.sæti – Bruno - 8 lyftur
4.sæti – Sigfús - 7 lyftur
5.sæti – Georg - 4 lyftur
6-7. Hjörtur - Engin lyfta
6-7. Kristinn Ari – Engin lyfta

 

Herkúlesarhald
140kg í hvorri hönd á tíma.

1.sæti – Benedikt - 48,85sek
2.sæti – Georg - 41,97sek
3.sæti – Hjörtur - 31,92sek
4.sæti – Jörgen - 29,80sek
5.sæti – Bruno - 29,32sek
6.sæti – Kristinn Ari – 21,88sek
7.sæti – Sigfús - 4,08sek

 

Atlas steinatök
100, 120, 140, 160 og 180kg steinar.
Hæð tunna 1,6 niður í 1,2m.


1.sæti – Georg - Allir steinar á 20,4sek
2.sæti – Benedikt - Allir steinar á 24,10sek
3.sæti – Jörgen - Allir steinar á 33,66sek
4.sæti – Bruno - 4steinar á 26,56sek
5.sæti – Sigfús - 4steinar á 58,48sek
6.sæti – Hjörtur - 3steinar á 45,76sek
7.sæti – Kristinn Ari – 3steinar á 66,8sek