Senda í tölvupóst
Skrifað af: Sunnu Hlín   
Laugardagur, 20. október 2007 00:00

Akureyrarmótið í Kraftlyftingum 2007
Úrslit


Hið álega Akureyrarmót í kraftlyftingum var haldið laugardaginn 20. Október í Jötunheimum í Íþróttahöllinni. Einungis þrír jötnar voru skráðir til leiks að þessu sinni.

Þórarinn er allur að komast í gang eftir að hafa verið frá vegna sjómennsku og stóð sig með ágætum miðað við lítinn undirbúning.

Stallone eins og hann er kallaður er harður nagli sem gefur ekkert eftir við átök.

Henry eða Cameldýrið eins og hann er gjarnan nefndur var að keppa á sínu fyrsta móti og stóð sig vel. Cameldýrið hefur sett sér markmið um að taka 250 kg í réttstöðulyftu næsta haust.

Sigfús, eða Skyrfús renndi sér ljúflega í gegnum mótið og var án keppnisútbúnaðar í bekkpressu og réttstöðulyftu. Skyrfús hefur einnig verið að keppa í aflraunum hér heima og erlendis. Stigahæsti maður mótsins, Sigfús Fossdal.

Yfirdómari var Inga Björk Harðardóttir og hliðardómarar voru þeir Rúnar Friðriksson og Elvar Óskarsson. Ritari og þulur, Þorvaldur Teningur Vestmann. Stangarmenn Helgi Bergþórsson, Gunnar Fanndal og Auðunn Trampe. Myndir er hægt að sjá HÉR.


100kg flokkur

Þórarinn Traustason 98,1 kg
Þórarinn Traustason

Hnébeygja 210kg
Bekkpressa
170kg
Réttstöðulyfta
250kg

Total: 630kg
Wilks
: 386,5kg


110kg flokkur

Henry Baldursson 100,4kg
Henry Baldursson

Hnébeygja 150kg
Bekkpressa 82,5kg
Réttstöðulyfta 210kg

Total: 442,5kg
Wilks: 268,9

+125kg flokkur

Sigfús Fossdal 146,1kg

Sigfús Fossdal

Hnébeygja 290kg
Bekkpressa 200kg
Réttstöðulyfta 310kg

Total: 800kg
Wilks: 443,3