|
|
Hið árlega Akureyramót í bekkpressu var haldið í Jötunheimum, Íþróttahölinni, á gamlársdag. Alls voru 13 keppendur skráðir til leiks þar af ein kona, Inga Dís Júlíusardóttir sem keppti í 75 kg flokki kvenna. Hún stóð sig mjög vel á sínu fyrsta móti og sýndi að hún getur náð langt ef hún heldur rétt á spilunum. Árni Freyr Árnason keppti á sínu fyrsta móti og sigraði 100 kg flokkinn og skaut þar t.d. reyndari manni Eyjólfi Unnarssyni ref fyrir rass en hann átti ekki gott mót, reyndi þrisvar við 150 en í þriðja skipti hafðist það. Kristinn Ari sigraði 125 kg flokkinn örugglega, en hann lyfti 185 kg sem er talsvert frá hans besta. Annar varð Gísli Rúnar Víðisson en hann stóð sig frábærlega á sínu fyrsta móti, rétt klikkaði á 150 kg. Það má geta þess að hann keppti án útbúnaðar, svo það má ætlast mikils af honum á næstunni. Hinn yfirlýsingaglaði Sigfús Fossdal átti mjög gott mót og lyfti 285 kg. Sigfús hefur lengi langað í 300 kg og lýsti hann því m.a. annars yfir á íslandsmóti KRAFT 2007 að hann ætlaði í þá tölu í haust(2007). Mikil andi var í Sigfúsi á mótinu og bað hann um að fá að taka aukalyftu uppá 301 kg. Ekki gekk það í þetta skipti og greinilega ekki komið haust ennþá hjá Fúsa. Sigfús var stigahæsti maður mótsins og jafnframt kosinn kraftlyftingamaður Akureyrar 2007. Mótið heppnaðist í alla staði vel og var ágætis skari af fólki að fylgjast með jötnunum og mikið af efnilegum keppendum sem voru að stíga sín fyrstu spor á lyftingapallinum. KFA vill koma á framfæri þökkum til allra sem lögðu hönd og plóg og óska öllum gleðilegs árs. Kvennaflokkur |
82,5kg flokkur |

Ljósm. Sunna Hlín - vodvafikn.net
80(3-0) 100(0-3) 100(0-3)
90kg flokkur |
130(0-3) 130(0-3) 130(0-3)
100kg flokkur |
110kg flokkur |
| 2.sæti 100(3-0) 110(0-3) 110(0-3) | 1.sæti
| ooooooooooooooooooooooooooo |
125kg flokkur |
2.sæti 115(0-3) 130(3-0) 150(0-3) | 1.sæti 170(3-0) 180(3-0) 185(3-0) | ooooooooooooooooooooooooooo |
+125kg flokkur |
Sigfús Fossdal - 151kg

Ljósm. Sunna Hlín
270(3-0) 285(0-3) 285(3-0)
| < Fyrri | Næsta > |
|---|











