Senda í tölvupóst
Sunnudagur, 13. ágúst 2006 00:00

Vestfjarðarvíkingurinn 2006
Úrslit

 

Árið 1993 var fyrsta aflraunamótið undir þessu nafni haldið á sunnanverðum Vestfjörðum og þátttakendur voru sterkustu menn Íslands á þeim tíma, hefur þetta mót verið haldið samfleytt síðan og er þetta því 14 mótið í röð. Vestfjarðavíkingurinn hefur flakkað um alla vestfirði og strandir líka og ávallt skartað sterkustu aflraunamönnum Íslands hvert ár og þetta ár er engin undantekning.


Hönd yfir hönd var fyrsta greinin á Ísafirði í ágætis veðri þurru en skýjuðu og nánast logn, dreginn var 3,5 tonna jeppi á hormóna túttum með tíu punda loftþrýstingi sem gerði dráttinn verulega þungann, dregnir voru 22 metrar á tíma og helstu úrslit urðu þessi.

1. sæti Georg Ögmundsson á 33,65 sek

2. Sæti Stefán Sölvi á 40,65 sek

3. Sæti Benedikt Magg á 43,92 sek

4 Sæti Svavar Sigursteins 44,27 sek

5 Sæti Guðm Otri 59,96 sek

6 Sæti Jón Valgeir 61,17 sek

7 Sæti Sigfús Fossdal 79,40 Sek

 

Herkulesarhaldið var einnig á Ísafirði og var haldið 2* 140 kg. Úrslit urðu þessi.

1. Sæti Stefán Sölv með 43,65 sek

2. Sæti Georg Ögmundsson 42,49 sek

3. Sæti Jón Valgeir með 39,45 sek

4 Sæti Benni Magg 36,33 sek

5 Sæti Svavar Sigursteins 33,94 sek

6 Sæti Guðm Otri 21,46

7 Sæti Sigfús Fossdal 4,09 sek

 

Myllugangan var síðan síðasta greinin þennan fyrsta dag og var einnig á Ísafirði. Gengið var með fjórar yngismeyjar líkt og í Smáralind og var það á flestra keppenda vitorði, að heldur þyngra hafi þetta verið eða varlega áætlað um 230 til 240 kg átak. Úrslit urðu þessi

 

1. Sæti Stefán Sölvi 61,70 metrar

2. Sæti Georg Ögmunds 59,35 metrar

3. Sæti Benni Magg 42,63 metrar

4 Sæti Svavar Sigursteins 29,73 metrar

5 Sæti Jón Valgeir 25,45 metrar

6 Sæti Sigfús Fossdal 25,35 metrar

7 Sæti Guðm Otri 4,25 metrar

 

Og þar með var lokið fyrsta keppnisdeginum, Benni orðinn illa meiddur og hættur keppni. Stefán með nauma forystu á Georg.

Steinatök var fyrsta greinin annann daginn og nú var gaman, veðrið var eins og best verður á kosið, glampandi sól og hiti. Flateyringar fjölmenntu að minnismerkinu um þá vini þeirra og ættingja sem fórust í snjóflóðunum um haustið 1995, minnismerkið stendur á lóð kirkjunar þar á staðnum, úrslit urðu þessi.

 

1 Sæti Georg Ögmunds 14,33 ,3 steinar

2 Sæti Stefán Sölvi 19,43, 3 steinar

3 Jón Valgeir 22,16, 3 steinar

4 Guðm Otri 31,65, 3 steinar

5 Svavar Sigursteins 32,68 ,3 Steinar

6 Sigfús Fossdal 1 steinn.

 

4 Steinninn í þessari grein er nýr og vegur 191,4 kg og er því ekki auðveldur, en hver verður fyrstur til að taka hann í keppni? hann er ekki ósigranlegur.

Réttstöðulyftan var síðan á Suðureyri þar sem íbúar þar halda sæluhelgi og var því margt um manninn og myndaðist griðarlega mikil stemning í veðurblíðunni, má sjá á myndum frá greinini á hitamælir að hitinn fór í 24 stig. Úrslit urðu þessi.


1 Sæti Stefán Sölvi 380 kg

2 Sæti Guðm Otri 360 kg og átti góða atlögu að 380 kg

3 til 4 sæti Jón Valgeir og Georg 350 kg

5 sæti Svavar Sigursteins 320 kg

6 Sæti Sigfús Fossdal 280 kg

 

Sundlaugargreinin var strax á eftir réttstöðunni og var í sundlauginni á Suðureyri, úrslit urðu þessi.

 

1 sæti Georg Ögmunds 35,51 sek

2 Sæti Svavar Sigursteins 37,69 sek

3 Sæti Stefán Sölvi 38,57 sek

4 Sæti Jón Valgeir 41,25 sek

5 Sæti Guðm Otri 41,50 sek

6 Sæti Sigfús Fossdal 47,82 sek.

 

Steinatök upp fyrir haus var svo fyrsta greinin síðasta daginn og var hún haldin við fossinn Dynjanda, þurrt og ágætis veður heilsaði okkur þar. Úrslit urðu þessi.

Stefán, Svavar og Georg voru þar jafnir, allir lyftu 113 kg en Stefán fór svo í 118 kg steininn sem fór upp en hann missti jafnvægið á honum og missti aftur fyrir sig,

4 Sæti var svo Jón Valgeir með 96 kg ,missti 108 kg.

5 Sæti Sigfús með 86 kg

Guðm Otri tók engan.

Kútakastið var líkt og vanalega á Þingeyri og stemninginn alltaf góð þar enda áttu viðstaddir eftir að sjá undur og stórmerki gerast. Úrslit urðu þessi.

 

1 Sæti Stefán Sölvi kastaði yfir 540cm sem er nýtt Íslandsmet með þessum kút , en hann hefur verið notaður nokkur undanfarin ár.

2 Sæti Tryggði jón Valgeir sér með stórbætingu, 525 cm

3 Sæti Georg Ögmunds með 510 cm sem er einnig bæting hjá honum.

4 Sæti Guðm Otri með 495 cm sem er talsvert undir getu vegna biceb meiðsla

5 Sæti Svavar Sigursteins með 450 cm

6 Sæti Sigfús Fossdal 360 cm.

 

Dekkjaveltan var síðan síðasta greinin og haldin á Ísafirði í hálfgerðu slagviðri. Vegna veðursins var greinini breytt talsvert frá því sem áður hefur verið, en nú var dekkinu velt fram og aftur sex veltur sem var bara ansi skemtileg tilbreyting. Dekkið var nokkuð þungt þetta árið, 450 kg.Úrslit urðu þessi.

 

1 Sæti Stefán Sölvi 33,41 sek

2 Sæti Georg Ögmunds 37,86

3 Sæti Jón Valgeir 39,10

4 Sæti Svavar Sigursteins 4 veltur

5 Sæti Sigfús Fossdal 1 velta

6 Sæti Guðm Otri sleppti

 

Þar með var fjórtánda Vestfjarðavíkingnum í röð lokið með sigri þess yngsta frá upphafi. Stefán Sölvi Péturson sýndi og sannaði að hann er einn sá allra fremsti aflranamaður sem komið hefur fram á sjónarsviðið hér á landi lengi og var vel að titlinum kominn, til haningju Stebbi. Fleiri stóðu sig ákaflega vel eins og Georg sem varð annar og bætti sig í mörgum greinum, Jón Valgeir bætti sig einnig talsvert í einhverjum greinum, en þó má segja að mest hafi komið á óvart árangur nýmolans létta og unga Svavars Sigursteinssonar sem brilleraði algjörlega á þessu móti og á virkilega framtíðina fyrir sér í þessu sporti, hann vigtaðist aðeins 106 kg á þessu móti og má því árangur hans teljast ansi góður á móti þessum hálftröllum. Guðm, Otri, Sigfús og Benni meiddir eða þreyttir koma aftur mikið öflugri seinna. Við viljum þakka þeim fjölmörgu sem aðstoðuðu okkur við mótið Bruno Doddi Arnar Óli Axel Maggi Bess Fannar Óli karl , Lára og Ásta og fjölmargir fleiri, einnig þökkum við þeim fjölmörgu fyrirtækjum sem sduddu okkar og síðast en ekki síst Ísafjarðarbæ.

Tekið af gömlu heimasíðu krafamenn.net