Skrifað af: Sunnu Hlín   
Föstudagur, 19. júní 2009 13:33

Maggi Bess á EM Öldunga

Maggi Bess Ljósmynd: Guðný AG
Ljósmynd: ©GudnyAg

Magnús Bess mun keppa á Evrópumóti Öldunga í vaxtarrækt sem fram fer í Rúmeníu 27.-28.júní næstkomandi. Sigurður Gestsson og Kristín Kristjánsdóttir munu keppa á sama móti. Hópurinn leggur af stað þann 25.júní en ferðin tekur sólarhring til Baia Mare í Rúmeníu þar sem mótið fer fram.

Maggi Bess hefur nú keppt á þremur mótum á árinu og þar af tveim erlendis. Árangur hans á þessum mótum hefur verið landi og þjóð til sóma, þar má telja 1. sæti á Grand Prix mótinu í Osló, 2. sæti á Loaded Cup í Danmörku og var Íslandsmeistari í Vaxtarrækt um páskana. Einnig var hann valinn Íþróttamaður ársins innan IFBB alþjóðasambandsins.

Síðasta haust náði hann svo langþráðu markmiði sínu en það var að verða Norðurlandameistari í -100 kg flokki í vaxtarrækt. Góður árangur hans undanfarið gerir hann sigurstranglegan á EM.

Bæði undirbúningur og keppnisferðir eru mjög kostaðarsamar og því hefur verið opnaður styrktarreikningur fyrir Magga:
Reikningsnúmerið er: 130-26-9980 og kennitala: 111069-3019

Katrín Eva verður sérstakur fréttaritari Vöðvafíknar úti í Rúmeníu og mun sjá okkur fyrir myndum og fréttum af keppendum.

Í næstu viku munum við vera með nýjung í viðtölum hér á Vöðvafíkn en við ætlum að taka video-viðtal við Magga Bess þar sem við förum í gegnum æfingu með honum og spyrjum hann vonandi spjörunum úr ;)

Við ætlum að gefa lesendum kost á að spyrja Magga spurninga svo ef þú hefur spurningu geturðu sent hana á sunnahlingunnlaugs@gmail.com fyrir kl 12.00 á Mánudaginn.

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 25. júní 2009 13:32