Skrifað af: Sunnu Hlín   
Fimmtudagur, 18. mars 2010 20:40

Hvað er að frétta ? Sigfús Fossdal

Sigfús Fossdal
Sigfús á Heimsmeistaramóti WPF 09
Ljósm. Ingibjörg Óladóttir


Hér er allt frábært að frétta, formið á góðri leið og fínt að gera í gymminu. Næsta mót hjá mér verður Evrópumótið hérna fyrir norðan og verð ég sko til í það. Svo er líka fjölgun á heimilinu. Ingibjörg er gengin 26 vikur og er sett 22. júní, eða daginn fyrir EM. Hún hefur fengið að hafa svolítið fyrir þessu en þegar upp er staðið hefur þetta gengið mjög vel.
 
 
Nú hefur heyrst að þú sért orðinn 170kg - er þetta flæðimassi eða gæðamassi ?;)
 
Já ég er búin að stækka all verulega undanfarið. Ég byrjaði strax eftir HM í haust að vinna mig út úr meiðslum, með þyngdum niður í 40kg, 5*5 í beygjum, 60kg 8*2 í deddi og 100kg 5*5 í bekknum og hef þyngt það skipulagt síðan. Það hefur skilað sér í miklum auknum styrk og núna er ég að klára 5 repsa undirbúninginn og færa mig meira í 3 reps. Ég er búin að pressa 200kg 5*5 og stefni á að beygja 300kg 5*5 eftir 2 vikur, og þar með verða bara 3 reps fram að móti. Ég tók powerburn námskeið hjá Ingibjörgu í janúar og fynnst það hafa kveikt helling á brennslunni hjá mér, ég lækkaði fituprósenutna hjá mér þá um 1,2% meðan ég þyngdist um kíló, og held satt best að segja að sú tala hafi ekki hækkað síðan þrátt fyrir slatta af kílóum sem hafa komið á mig. Ég ætla að láta Ingibjörgu mæla mig aftur fljótlega eftir 5 repsinn bara til að sjá hvar ég stend. Það má segja að það ánægjulegasta núna sé að deddið sé að koma vel upp. Ég er búin að dedda 290kg 8*2 og átti inni, en fer í 300kg núna á laugardag.
 
Sigfús í Viking Gym 2010
Sigfús í Viking Gym 2010
Ljósm. Birna Sif


 
Hvernig gengur stöðin þín Viking Gym þarna á Akureyri? 
 
Það gengur vel hérna í Viking Gym. Við erum með powerburn í boði á morgnana, og nokkra einkaþjálfara sem eru að þjálfa hérna. Ingibjörg hefur líka byrjað að kenna stelpu drumbalyftu á fimmtudagskvöldum, og er að byrja aftur með stelpudedd á föstudögum. Við héldum í samstarfi við AFA Jólamót í bekkpressu núna seinast og vorum svo með Viking Gym vs. Jötunheimar um daginn í bekkpressu líka, en þar myndaðist flott stemming en létt var yfir þessu, bara einn dómari tildæmis. Það er nóg framundan hjá AFA eins og sjá má á keppnisskránni hjá þeim, en fyrstu helgina í júlí ætlar Viking Gym að halda í samstarfi við Kaffi Akureyri, kjötmót í bekkpressu þar sem nýr kjötkóngur Íslands í bekkpressu verður kríndur. Met Auðuns Jónssonar, 250kg, er vissulega gott met en tími er kominn á að það falli og ætla ég að slá það þar, og skora á alla sem telja sig geta bætt það, eða unnið mig á kjötinu að mæta og vera með í andanum. Mótið fer fram á Kaffi Akureyri að kvöldi til og verður betur auglýst síðar.
 
 
Páll Logason & Sigfús á HM WPF 2009
Páll Logason & Sigfús á HM WPF 2009
Ljósm. Ingibjörg Óladóttir



Hvernig hefur undirbúningurinn fyrir Evrópumót WPF sem haldið verður fyrir norðan í sumar gengið ?
 
Undirbúningur fyrir Evrópumótið gengur fínt. Þetta er hellingsvinna auðvitað og hefur stjórn ÍKF Metal hjálpað mér með þetta. Mótið verður haldið í Íþróttahöllinni á Akureyri og stefnir í góðan hóp keppenda. Nokkur góð met verða sett þarna. Sjálfur stefni ég á 1200kg total sem aldrei hefur verið tekið í einföldum keppnisbúnaði, og heirst hefur að Benedikt Magnússon ætli að sýna heimsbyggðinni hver sé sterkasti deddari í heimi. Þetta verður því mikil sýning og stefnt er að því að hún verði send beint út á netinu.
 
Ingibjörg & Sigfús á HM WPF 2009
Ingibjörg & Sigfús á HM WPF 2009
Ljósm. Valdimar Ragnar Valdimarsson