Hvað er að frétta Valdi Kerfis ?Valdimar Ragnar eða Valdi Kerfis eins og hann er nú alltaf kallaður er að fara út að keppa á kjötmóti um helgina svo við ákváðum að heyra í honum hljóðið og spyrja hann út í undirbúninginn fyrir komandi mót. Valdi Kerfis á HM í Las Vegas 2009 Ljósm. Einkasafn
|
Það er allt dásamlegt að frétta. Æfingar hafa gengið nokkuð vel, ég slasaði mig aðeins í hendinni um daginn og þurfti að sleppa nokkrum æfingum meðan það jafnaði sig að mestu. Annars er ég á leiðinni til Finnlands að keppa um næstu helgi. Svo er Íslandsmót hjá IKF Metal tveim vikum seinna. Í framhaldi af því verður farið að stilla sig af fyrir Evrópumót. Svo er stóra verkefnið á árinu heimsmeistaramót í Bretlandi í nóvember en planið er að taka út stóru bætingarnar þar. Einnig gætu dottið inn einhver önnur mót á milli eins og Íslandsmót í deddi / Guttormsmótið og fleira en æfingaplani fyrir EM og HM verður ekki riðlað vegna annara móta.
Nú ertu að fara keppa á kjötmóti um helgina segður okkur aðeins frá því ? Mótið sem ég er að fara á í Finnlandi er haldið af Jani Murtomaki og konunni hans. Mótið er haldið á bar um kvöld og stemmingin víst ansi hressandi. Þetta er kjöt mót í bekk og deddi, tvö aðskilin mót. Bróðir minn fer með mér en svo erum við með tvo ansi glæsilega ferðafélaga sem eru Benni Tarfur og Arnar Loggur. Það eru nokkrir flottir keppendur þarna. Helst ber að nefna Tommi Pitkanen sem tók á þessu móti í fyrra 250kg í bekk aðeins 102kg sjálfur. Í fyrra keppti náungi í 82,5kg flokki sem tók 350kg í deddi, ég veit ekki hvort að hann keppir í ár. Þarna verður einnig Jari "Bull" Mentula sem mér skilst að sé einn fremsti bodybuilder þeirra Finna en hann hefur verið drjúgur í power og á allavega 310 í slopp, ég er ekki viss um hvað hann hefur gert á kjötinu. Svo er að sjálfsögðu Benni Tarfur en eins og flestir vita að þá er það hrein upplifun að sjá hann dedda. Einnig er ansi verkleg dama þarna sem hefur tekið allavega 130 á kjötinu. Ég hef ekki séð endanlegan keppendalista en þetta verður sjálfsagt mjög flott. Valdi Kerfis á Bikarmóti ÍKF METAL 2008 Hvað þú stefnir á að taka og hverjar eru opnunartölurnar Ætli ég opni ekki á 160kg í bekknum til að ná inn öruggri fyrstu lyfta. Ég væri sáttur við að taka 180kg - 185kg það kemur í ljós hvernig ég fíla mig hvað ég reyni við. Ég hugsa að ég byrji á 250kg í deddinu en hef ekki hugmynd um hvað ég get þar án þess að vera í stálbrókinni, mér finnst stílinn fara allveg út um gluggann þegar ég er ekki í henni. Ég held að allt undir 290kg sé frekar slakt fyrir mig. Hvernig hefur undirbúningurinn fyrir þetta mót gengið þar sem þú ert líka að fara keppa á Íslandsmóti METAL þar sem þú keppir í búnaði ? Undirbúningur hefur verið frábrugðinn því sem ég hef gert áður, ég hef farið í meira þyngdir á kjötinu. Ég hef t.d. tekið heila æfingu á kjötinu og farið svo í græjur og tekið nokkrar lyftur. Áður hef ég bara hitað upp og farið svo í græjur. Einnig hafa græju æfingar verið færri en áður. Ég set yfirleitt upp sirka 15 vikna plan sem ég fylgi nema eitthvað komi uppá. Þá bæti ég í og rétti það af í vikunni á eftir. Heilt yfir hefur þetta gengið nokkuð og sennilega betur en ég átti von á. Svona óvissuþættir virka ekki vel á mig og til dæmis er ég oft búinn að skipuleggja hverja æfingu jafnvel mörgum dögum áður. Hvaða tölur stefnirðu á á Íslandsmótinu ? Mér sýnist á öllu að ég byrji á 300kg í hnébeygju, 205kg í bekk og 280kg í réttstöðulyftu. Ég ætla leyfa öðrum að hafa áhyggjur af því hvar ég enda en ég er með mín markmið á hreinu. Ég mæti ekki á mót nema með það að markmiði að bæta mig frá síðasta móti. Tommi Pitkanen 250kg kjötbekkur Tommi Pitkanen 200kg x 11 á kjötinu
|