Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 25. maí 2010 00:00

Hvað er að frétta Thelma Ólafsdóttir ? 


Thelma í nýja bleika sloppnum sínum
Ljósm. Sunna Hlín

 
Ég er að fara keppa á Heimsmeistaramóti IPF í Bekkpressu sem haldið er í Killeen Texas. Síðasta mót sem ég fór út að keppa á var HM Unglinga í Brasilíu og var það nú töluvert lengra ferðalag og meiri pressa einhvern vegin á manni þannig ég er voðalega takmarkað að stressa mig á þessu núna, fyrsta mótið mitt í opnum flokki og ætla ég bara að hafa alveg hrikalega gaman af þessu :)

 Hún keppir 27.maí kl 17.00 að íslenskum tíma !

Hægt er að horfa á mótið í beinni hér

 

 

Hvenær ákvaðstu að keppa á þessu móti ? 

Ég tók stefnuna á þetta mót um áramótin, ég var búin að vera að velta þessu smá fyrir mér. Svo þegar ljóst var að ég myndi ekki geta tekið þátt á EM í Kraftlyftingum ákvað ég að drífa mig á þetta mót og slá tvær flugur í einu höggi þar sem ég á fjölskyldu í Bandaríkjunum frá því að ég var skiptinemi.

 

Hvaða tölur ætlarðu að opna í ?

Ég ætla að öllu óbreyttu að opna á 95kg sem verður persónuleg bæting fyrir mig í -75kg flokki.


Hvar hefuru verið að æfa fyrir mótið?

Ég hef verið að æfa í Jakabóli fyrir þetta mót. Hann Páll Logason (Fermeterinn) Hefur verið mér til halds og trausts á æfingum fyrir þetta mót eins og fyrir HM Unglinga í fyrra. Hann hefur algjörlega tekið mig undir sinn væng, skipulagt allar æfingar í þaula og verið með mér 4 klukkutíma í senn svona síðustu vikurnar á bekkpressuæfingum og er ég honum ótrúlega þakklát, því ég væri ekki þar sem ég er í dag í þyngdum ef ekki væri fyrir hann. Þvílíkur snillingur og gjörsamlega lekur af honum andi og jákvæðni sem er rosalega mikilvægt að hafa í kringum sig þegar maður er í uppkeyrslu og erfiðum æfingum, þrettur og stressaður.

 


Sloppurinn prufukeyrður í Jakabóli
Ljósm. Sunna Hlín

 

Svo vil ég bara koma því á framfæri að ég er að selja klósett pappír á 3.500kr, gúrmei mjúkur pappír 48 rúllur til styrktar ferðarinnar minnar :)