Skrifað af: Sunnu Hlín   
Miðvikudagur, 21. júlí 2010 13:12

Hvað er að frétta Sigfús Fossdal ?

Síðustu mánuði hefur verið nóg að gera hjá Sigfúsi þar sem hann var að undirbúa sig fyrir Evrópumót WPF, opnaði gym, skipulagt mót, eignat litla stelpu og ýmislegt fleira.
 

Félagarnir Páll Logason & Sigfús Fossdal á HM WPF 2009 sem haldið var í Las Vegas
Ljósm. Ingibjörg Óladóttir

Nú varstu mótshaldari á nýafstöðnu Evrópumóti WPF hvernig fannst þér útkoman ?

Evrópumótið á Akureyri var að mínu mati mjög gott mót. Undirbúiningurinn var mjög erfiður, sérstaklega í ljósi þess að EPC ákvað í lok maí að aflísa EM en viku seinna var það sett á aftur. Þetta gerðu þeir út af eldgosinu sem á þessum tíma var að hætta. Vegna þessa var lítið um útlendinga þarna, en það kom aldrei til greina af okkar hálfu að gefast upp þar sem að mikið var skráð af íslendingum á mótið, og vildum ekki bregðast þeim.

Ég er eins og ég segi sáttur við mótið í heild, en geri mér vel grein fyrir því að margt hefði vel mátt fara betur, en það var mikil misskilningur með skráningu og annað og mikið af loka undirbúning var reddað kvöldið fyrir mót. Ég hefði tildæmis viljað hafa dómaramál betur undirbúin en það gekk illa þar sem að við fengum ekki að vita að utan hvaða dómarar væru að koma og svoleiðis. En það gekk samt allt upp og öll met voru dæmd með löglegum dómurum.

Sjálfur þurfti ég að hætta við keppni þar sem ég var búin að vera veikur í 3 vikur, og að lokum viku fyrir mót fór ég í magaspeglun og komst að því að ég væri með sár í vélinda sem blæddi. Ég hefði þannig lagað séð getað keppt, en ég gat ekki klárað seinustu æfingar fyrir mót og hefði haft á nokkurn hátt gott af því.

Til hamingju með litla krílið sem fæddist um daginn :)

Já þann 9.júní, afmælisdaginn minn, eignaðist ég með Ingibjörgu litla prinsessu sem kom með keisara. Hún var 17 merkur alveg eins og bróðir sinn sem er að verða 8 ára í sumar, og 56 cm. Hún þurfti að vera nokkra daga á vökudeild og Ingibjörg lá inni sömuleiðis í eina 5 daga, en allt hefur þó gengið vel, þó það sé en að koma rútína á hana. Við skírðum hana snemma og hefur hún fengið Emilía Heiðdís. Emilía er í höfuðið á lang ömmu Ingibjargar, en Heiðdís er milli nafn mömmu, sem heitir Sigrún Heiðdís. Við erum dauð uppgefinn á öllu nætur bröltinu, en alveg í skýjunum með þetta allt saman hehe.
 

Sigfús með dótturina Emilíu - Ljósm. Einkasafn

Nú hefur heyrst að þú sért að fara út á Mr. Olympia að keppa í kraftlyftingum ?

Já, eftir EM hafði ég samband við Steve Denison sem hélt HM í Vegas og heldur America Cup mótin sem ég hef keppt einu sinni á, og óskaði eftir að fá að keppa á móti hjá honum í september, helst Olympia mótinu. Hann sagðist vera búin að fylla öll pláss í power, en ef ég hefði haft samband fyrr hefði hann tekið mig inn. En bauð mér pláss í bekk og dedd single lift keppni, og að ég myndi fá laust pláss í power ef slíkt myndi opnast. Þannig að ég er með boð á þetta mót, en akkúrat núna er ég ekki alveg viss hvaða mótum og hvort ég muni keppa á einhverjum stórviðburðum það sem eftir er þessa árs.

Nú kepptirðu á Vestfjarðarvíkinginn hvernig kom það til ?

Ég var eins og áður sagði búin að vera mikið veikur og hélt ég stæði aðeins betur en ég gerði. Veikindin voru enn að há mér, og gera eitthvað áfram. Ég sé samt ekki eftir að hafa farið, ferðin var virkilega skemmtilega og alveg þess virði að fara og sjá Jón Þór brillera.
 

Sigfús í Réttstöðunni á Vestfjarðarvíkingnum 2010 :)
Ljósm. Stulli & Gulla

Hvernig gengur í Viking Gym ?

Viking Gym hefur gengið mjög vel í vetur og er að festa sig í sessi. Bæði er mikið af fólki að sækja í powerburnið, og margir sem vilja komast út úr stóru stöðvunum, og í eitthvað minna og persónulegra. Svo er slatti af ungum efnilegum strákum að koma þarna inn sem eiga eftir að ná langt í power. Við erum sérstaklega núna með tvo stráka, annar verður einn daginn besti pressari á landinu, og hinn á ekki mörg ár í að fara að stríða okkar bestu mönnum í -100 kg flokki. Þetta er allt mjög spennandi.

Hvað er næst á dagskrá hjá Aflraunafélagi Akureyrar ?

Næst er það Bikarmót í Drumbalyftu, þar sem við þurftum að fresta Aflraunameistaranum venga dræmrarþáttöku. Fyrst var honum frestað til 17. til að gera keppendum fært að þurfa ekki að gera upp á milli AMÍ og Vestfjarðar Víkingnum, en það endaði með því að hjá okkur fækkaði keppendum við það og því ákváðum við að færa það fram til seinustu helgarinnar í október. Stefnan er að halda það innan hús og vera með kvennaflokk og plús og mínus 105 kg flokk.