|
Föstudagur, 16. maí 2008 00:00 |
Hvað er að frétta ?María Guðsteinsdóttir Það er allt gott að frétta hjá mér. Ég var að koma frá Tékklandi þar sem ég keppti á Evrópumeistaramótinu í kraftlyftingum. Ég keppti létt í 75,0 kg flokki en alls vorum við sex stelpurnar í þessum þyngdarflokki. Mér gekk ágætlega í hnébeygjunni og jafnaði mitt besta 180,0 kg. Varð í þriðja sæti í hnébeygjunni sem dugði til bronsverðlauna. Í bekknum var ég líka mjög nálægt mínu besta en réttstaðan gekk ekki vel. Ég byrjaði með 170 kg í réttstöðunni en fékk svo ógilt á 180,0 kg. Þá lagði ég allt undir í þriðju tilraun til þess að reyna við brons verðlaun í samanlögðum árangri en 187,5 kg fóru ekki upp.
Vel var staðið að mótinu og var lokahófið mjög skemmtilegt. Ég er strax farin að hlakka til næstu móta. Stefni á að fara aftur á 1-2 aþjóðlegt mót á þessu ári og svo mun ég sennilega líka keppa á 1-2 innanlandsmótum.
|