Skrifað af: Sunnu Hlín   
Þriðjudagur, 28. september 2010 13:38

"..staðurinn sem miðaldra húsmæður fara og rembast.."

Hvað er að frétta Páll Logason ?

æææ
Páll á HM WPF 2009


Nú hefur mikið sést til þín æfa í World Class í Laugum hver er sagan á bakvið það?
Sagan á bak við það er nú ekki mjög flókin. ég er powerkall og æfi vanalega í powergym (Jakabóli). Þegar ég ákvað að hætta keppnum í sumar og skafa af mér lýsið tók ég þá ákvörðun að fara í gym sem býr að þannig anda. World Class er staðurinn sem miðaldra húsmæður fara og rembast eins og rjúpur við staur að ná af sér jólahangikjötinu. Megrunarandin er í World Class, þegar ég fer að takáðí, þá fer ég annað.

Er kallinn í fegrun ?
Ég kýs að kalla það megrun þar sem ég er alltaf 100% fallegur. Maður verður að lúkka eitthvað líka ;) ekki er mörin að hjálpa til við það.

Hvað ertu orðinn "léttur núna" ?
Ég er núna ca. 20kg léttari en ég var þegar ég var þyngstur. Annars er ég meira að fylgjast með speglinum heldur en baðvoginn, mér er alveg sama hvað ég er þungur.

Hvað er svo framundan ?
Framundan er að megra mig aðeins meira áður en ég fer að styrkja mig upp aftur og gera allt vitlaust í powerheiminum, hérlendis sem og erlendis.

Smellið á nánar til að lesa allt viðtalið


Einhver mót ?
Ég ætla að heiðra minningu Óla Fógeta á laugardaginn næstkomandi og bekka eitthvað þó ég sé ekki í neinu formi. Annað en það hef ég ekki sett stefnuna á neitt á næstunni, ég er þó með ýmislegt á prjónunum á komandi ári.

Eitthvað sem þú vilt deila með okkur ?
Jahh, Ég hef boð á allavega eitt aflraunamót erlendis næsta sumar, svo ætla ég að reyna að draga bísep drottninguna Heimir með mér á bekk og dedd mót sem haldið er á Muscle Beach næsta haust. Ég reyni að stoppa við á HM hjá WPF og gera einhverjar gloríur þar, en það fer svolítið eftir því hvar mótið verður haldið. Það er víst ekki alveg ljóst. Svo er eitthvað meira skemmtilegt sem ég get ekki alveg deilt eins og er.  

Stefna sett á einhverjar tölur ?
Það eina sem er ákveðið er að ég ætla að taka 1000kg á kjötinu á næsta ári, vonandi fyrsti Íslendingurinn. það er það eina sem ég hef ákveðið.